Fundur um málefni Elliðaánna á vegum Stangveiðifélags Reykjavíkur
Apr
16

Fundur um málefni Elliðaánna á vegum Stangveiðifélags Reykjavíkur

Píratar taka þátt í fundi SVFR um framtíð Elliðaánna.
Úr viðburðarlýsingu á vef SVFR:

Fimmtudaginn 16. apríl kl. 20:00 efnir Stangaveiðifélag Reykjavíkur til opins fundar um málefni Elliðaánna og býður öllum framboðum sem taka þátt í komandi borgarstjórnarkosningum að koma og gera grein fyrir afstöðu sinni.

Elliðaárnar eru einstakt náttúrufyrirbæri í miðri höfuðborginni. Þær eru dýrmætt útivistarsvæði, mikilvægt búsvæði fisks og annars lífríkis og hluti af náttúruarfi Reykjavíkur. Á sama tíma eru þær viðkvæmt vistkerfi sem þarf skýra vernd og ábyrga stefnu.

Á fundinum verður rætt um framtíð ánna, framkvæmdir á áhrifasvæði þeirra, aukna umferð um dalinn, brúarsmíði, skipulag og hvernig borgin hyggst tryggja raunverulega vernd Elliðaánna til framtíðar.

Á aðalfundi SVFR 26. febrúar síðastliðinn var samþykkt ályktun um vernd Elliðaánna. Með þessum fundi viljum við skapa vettvang fyrir opna, málefnalega og skýra umræðu við þá sem sækjast eftir umboði borgarbúa.

Fundurinn verður haldinn á kaffihúsinu Elliða við Rafstöðvarveg 12, í hjarta Elliðaárdal, og er opinn öllum.
Við hvetjum alla sem láta sig framtíð Elliðaánna varða til að mæta


Hlekkur með viðburðarupplýsingum hér.

View Event →
Kynning á Sundabraut hjá Vegagerðinni
Apr
17

Kynning á Sundabraut hjá Vegagerðinni

Píratar mæta á kynningarfund um Sundabraut á vegum Vegagerðarinnar.

View Event →
Íbúafundur: Samgöngur og Sundabraut
Apr
21

Íbúafundur: Samgöngur og Sundabraut

Píratar mæta á íbuafund um samgöngur og Sundabraut í Langholtsskóla þann 21. apríl milli kl 20:00 - 22:00.

Úr viðburðarlýsingu frá Íbúasamtökum Laugardals:

(English below - Fundi seinkað um 30 mín að beiðni framboða)
Fundurinn verður í samkomusal Langholtsskóla.
Boðið verður fulltrúum allra framboða til borgarstjórnar í Reykjavík í vor.

Dagskrá fundar.
Innlegg frá stjórn Íbúasamtaka Laugardals
Erindi um öryggi og samgöngur í Laugardal
Framboð fá tækifæri til stuttrar kynningar á sinni stefnu
Umræður í sal

Fundur verður opinn öllum á meðan húsrúm leyfir.
Íbúar í Laugardal sem vilja styðja við framkvæmd fundar með þátttöku í undirbúningi gefi sig fram á ibuarlaugardals (hja) 
gmail.com

This event is a meeting for residents of Laugardalur, about traffic control, security and Sundabraut. The representative parties running for city elections will be invited. The program will be in Icelandic.

View Event →
Reykjavík og ferðaþjónusta
Apr
29

Reykjavík og ferðaþjónusta

Píratar verða á fundi Markaðsstofu Höfuðborgarsvæðisins um Reykjavík og ferðaþjónustu.

View Event →

Framhaldsskólamóti Rafíþróttasambands Íslands
Apr
15

Framhaldsskólamóti Rafíþróttasambands Íslands

Oddviti Pírata, Kristinn Jón Ólafsson, mætir á Framhaldsskólamót Rafíþróttasambands Íslands á Arena Gaming í Turninum í Kópavogi.

View Event →
Formaður Pírata heimsækir NPA miðstöðina
Apr
14

Formaður Pírata heimsækir NPA miðstöðina

Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns sækir NPA miðstöðina heim og kynnist störfum þeirra betur.

View Event →
Tölum um hönnun og arkitektúr: Samtal um borgargæði með sérfræðingum og oddvitum í Reykjavík
Apr
14

Tölum um hönnun og arkitektúr: Samtal um borgargæði með sérfræðingum og oddvitum í Reykjavík

Hvernig sköpum við borgargæði með arkitektúr og hönnun? Í aðdraganda kosninga þá beinum við sjónum að borgargæðum og hvernig beita má arkitektúr og hönnun með markvissum hætti við uppbyggingu borgarinnar til að skapa gæði og gott samfélag fyrir íbúa, börn og fullorðna. 

Hvernig getur hönnun og arkitektúr verið leiðandi breytur í að auðvelda og greiða leiðir fólks og fyrirtækja; hvað varðar búsetu, menntun, velferð, atvinnutækifæri, afþreyingu, samgöngur og öryggi?

Fyrirlesarar: 

Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður, Pláss
Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, teiknistofan Stika
Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt, Landslag

Þrír fyrirlesarar fjalla um og sýna góð dæmi hér á landi um hvernig arkitektúr og hönnun geta skapað gæði og gott mannlíf. Í framhaldi verður oddvitum stjórnmálaflokkanna í borginni boðið í pallborðsumræður um málefnið.

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar
Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks
Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata
Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, 2. sæti Miðflokkur
Líf Magneudóttir, 2. sæti Vinstrið
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingar
Sigfús Aðalsteinsson, oddviti Okkar borg
Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalista

Bergur Finnbogason, listrænn stjórnandi CCP leiðir umræður.

Í haust fór Miðstöð hönnunar og arkitektúrs af stað með opna fyrirlestra í Grósku sem fjalla um áhugaverð málefni á sviði á hönnunar og arkitektúr, tökum stöðuna hvar við erum stödd og á hvaða vegferð við erum.

Gróska, Vísindagarðar og Bláa Lónið eru samstarfsaðilar Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og fyrirlestraraðarinnar Tölum um hönnun og arkitektúr.


Nánar hér.

View Event →
Frambjóðendur Pírata mæta á Lýðráðstefnu í MH
Mar
27

Frambjóðendur Pírata mæta á Lýðráðstefnu í MH

Þau Jökull, Oktavía og Olga verða á Lýðráðstefnu í Menntaskólanum við Hamrahlíð milli klukkan 11:45 - 14:15.

View Event →
Kristinn Jón Ólafsson, Oddviti Pírata, í Silfrinu
Mar
23

Kristinn Jón Ólafsson, Oddviti Pírata, í Silfrinu

Oddvitar ræða borgarmálin í Silfrinu á Rúv í kvöld.

Hægt verður að streyma hér:
https://www.ruv.is/sjonvarp/beint/ruv

View Event →