Borg hönnuð fyrir fólk
Skemmtileg, frjáls
og lifandi borg
Skemmtileg, frjáls
og lifandi borg
Við ætlum að hanna borgina með öryggi og lífsgæði borgarbúa að leiðarljósi.
Við viljum nota borgarhönnunarstefnu Reykjavíkur til þess að tryggja að umhverfið sé á mannlegum skala, aðlaðandi og hlýlegt. Við viljum byggja upp borg sem fólki finnst gott að búa í.
Reykjavík á að vera nútímaleg gæðaborg þar sem réttindi allra sem í henni búa eru tryggð og þar sem fjölbreytileikanum er fagnað. Þar sem þátttaka allra, óháð fötlun, aldurs, uppruna eða kynhneigð, er kjarninn í borgarlífinu. Borgin er samfélag okkar allra.
Frelsi fólks er lykillinn að góðri borg. Við ætlum auka valfrelsi og skapa borg þar sem fólki finnst gott að vera. Það á að vera auðvelt fyrir íbúa að hreyfa sig innan samfélagsins sem við byggjum og Reykvíkingar eiga að upplifa að þeim standi allar dyr opnar. Tilgangur kerfa á alltaf að vera að bæta líf fólks, ekki að flækja það.
Við ætlum að skapa fleiri rými fyrir menningu og listir, búa til fleiri staði fyrir ungmenni og byggja upp borg sem er lifandi, ekki bara virk.
Frelsi fólks er lykillinn að góðri borg. Við viljum auka valfrelsi og skapa borg þar sem fólki finnst gott að vera. Það á að vera auðvelt fyrir íbúa að hreyfa sig innan kerfisins sem við byggjum og Reykvíkingar eiga að upplifa að þeim standi allar dyr opnar.
Við viljum fleiri rými fyrir menningu og listir, fleiri staði fyrir ungmenni og borg sem er lifandi ekki bara virk.
Einföldum kerfin til
að auka valfrelsi
Við ætlum að einfalda kerfin og bæta þjónustu við borgarbúa. Þannig bestum við rekstur borgarinnar.
Við ætlum að efla beint lýðræði þannig að rödd borgarbúa hafi raunveruleg áhrif á sitt nærumhverfi.
Fólk á að geta valið þann ferðamáta sem hentar hverju sinni, hvort sem það er gangandi, hjólandi, í strætó eða á bíl. Þannig bjóðum við upp á raunverulegt valfrelsi í samgöngum.
Við stöndum á tímamótum.
Næstu skref skipta máli.
Veljum borg sem byggir á þátttöku,
trausti og skýrri framtíðarsýn,
borg sem er betri fyrir fleiri.
Bestum borgina
Leikskólar
Menning
og listir
Velferð
Píratar leggja áherslu á að börn í leik- og grunnskólum borgarinnar fái tækifæri til sjálfseflingar og öðlist þá færni sem þarf til þess að fóta sig í síbreytilegum heimi nútímans. Þau læri að nota tækni, en læri líka á samfélagið og öðlist félagsfærni. Við ætlum að tryggja öllum jafnan aðgang að menntun óháð efnahag eða búsetu. Til að ná þessu munum við:
Efla leikskólastigið og fjölga faglærðum leikskólakennurum. Við ætlum að greiða leiðina fyrir leikskólaleiðbeinendur að fara í kennaranám. Við viljum niðurgreiða kennaranámið og gefa rými til þess að stunda námið ásamt vinnunni.
Auka fjölbreytni og sveigjanleika í menntakerfinu.
Styðja við frístundir og þátttöku ungs fólks í samfélagslegum verkefnum til að efla sjálfstraust og hæfni þeirra.
Efla skólaþjónustu, fjölga sálfræðingum og talmeinafræðingum
Efla listir og iðngreinar
Bestum Reykjavíkurborg með stóraukinni fjárfestingu í menningu og listum. Á tímum umbyltingar og óstöðugleika eru menning og listir allra besta fjárfestingin. Nú þegar gefur hver króna fjárfest í skapandi greinar þrefalt til baka. Höfum framtíðarsýn og kjark til að efla, besta og lýðræðisvæða menningu og listir. Tryggjum fleiri æfingarrými fyrir tónlistarfólk, upprennandi og þaulreynt, fyrir sviðs- og leiklistir og fyrir ungmenni. Finnum fleiri leiðir til að samtvinna listafólk í störf borgarinnar, eins og listskúlptúra á leiksvæðin og meira listnám í leik- og grunnskóla. Umbyltum sjóðskerfin og förum óhefðbundar leiðir við að skoða tækifæri til að innleiða okkar eigin listamannalaunakerfi. Gefum fjölbreyttu listafólki borgarinnar beina aðkomu að úthlutunum í gegnsæju ferli.
Fullfjármögnum menningarstefnu Reykjavíkurborgar!
Fjármögnum menningarstefnuna að fullu
Gefum sviðs- og leiklistum æfingarrými
Tryggjum að upprennandi tónlistarfólk hafi fleiri staði að æfa.
Fellum niður fasteignagjöld fyrir rými nýtt undir menningarstarfsemi, hvort sem það er leigt eða í eigu.
Endurhugsum sjóðskerfi borgarinnar og gefum listafólki beinan aðgang að úthlutunarferlinu
Kerfi borgarinnar eiga að vera hönnuð til þess að mæta þörfum einstaklinga. Við höfum verið leiðandi í umbótum og innleiðingu notendamiðaðrar þjónustu. Við skuldbindum okkur til þess að setja fólk í fyrsta sæti. Það þýðir aðgengilegar upplýsingar, stafrænar lausnir og þjónusta sem nálgast ekki fólk sem vandamál.
Félagsleg kerfi borgarinnar eru mikilvægur og nauðsynlegur hlekkur í því að grípa okkar viðkvæmasta fólk. Píratar vilja tryggja öryggi þeirra barna og fjölskyldna sem þurfa vernd og þjónustu félagslega kerfi borgarinnar, ekki síst barnavernd Reykjavíkurborgar. Okkar markmið er að barn sem þurfi stuðning félagslegra kerfa borgarinnar upplifi mannúðlegaþjónustu þar sem þarfir þess eru ávallt hafðar að leiðarljósi. Píratar vilja byrja frá grunni og tryggja fyrir allt annað að ábyrgðakeðja, eftirlit og úttektum sé háttað á gagnsæjan og skilvirkan máta.
Píratar ætla að umbylta barnaverndarkerfinu og tryggja málaflokknum nauðsynlegar breytingar og aðhald, núna og til framtíðar.
Samgöngur
Eina raunhæfa leiðin til að bregðast við fólksfjölgun og tilheyrandi fjölgun bíla er að búa til þannig kerfi að hærra hlutfall ferða geti verið hjóland, gangandi eða í almenningssamgöngum.
Áhrifaríkasta leiðin til þess að efla almenningssamgöngur og hækka hlutfall ferða í þeim er að auka tíðni svo fólk þurfi ekki að bíða, eða mæta á ákveðnum tíma, helst þurfa vagnar að fara á 7-10 mínútna fresti.
Bestum umferðarflæðið í borginni með að hraða fyrir borgarlínunni: markmiðið er 70% íbúa búi í innan við 400 metra fjarlægð frá stoppistöð leiðar á að minnsta kosti 10 mínútna tíðni á annatíma eigi síðar en árið 2040.
Við höfum stóreflt hjólastíga á síðustu tveimur kjörtímabilum og viljum halda því áfram. Öflugar hjólreiðar eru lýðheilsumál og líka umferðarmál, en ferðir sem farnar eru hjólandi eru ekki ferðir sem bæta á umferðarþungann.
Með stefnu um gönguvæna borg tókum við stórt skref í rétta átt. Tryggjum fleiri göngugötur og stóreflum öruggari og betri gönguleiðir og stíga um borgina okkar allra.
Með þessum aðferðum búum við til alvöru valkosti fyrir fólk til þess að ferðast eins og það kýs, og með því að fjölga ferðum sem farnar eru gangandi, hjólandi og í almenningssamgöngum erum við líka að bæta umferðarflæði fyrir þau sem nota bíl.
Rekstur borgarinnar þarf að vera ábyrgur, og þess vegna er mikilvægt að nýta sem best það sem við höfum.
Við viljum besta nýtingu fjármagns, tíma og mannauðs til þess að gera meira með það sem við höfum. Það gerum við með skynsamri fjárfestingu í verkefnum sem draga úr kostnaði síðar og skapa þannig meira svigrúm til framtíðar.
Það er það sem við gerðum í stafrænu þjónustuumbreytingunni og hún er að skila sér í 1,7 milljarða hagræði í ár, og það mun halda áfram að aukast ár frá ári eftir því sem við höldum áfram.
Það gerum við líka með öflugri skólaþjónustu sem hjálpar börnum snemma, áður en vandamálin verða of stór, með snemmtækri íhlutun. Það gerum við líka með skaðaminnkandi nálgun í velferðarþjónustu og virkniúrræðum.
Við viljum líka nota skapandi lausnir í rekstri, það má nota útboð áskoranna, þar sem útboðsaðilinn fær tækifæri til að koma inn með lausn.
Það eru tækifæri til að samræma betur rekstur húsnæðis, bílaflota, innkaupa og stoðþjónustu í borginni, t.d. með sérstöku rekstrarsviði.
Rekstur
Mannréttindi
Píratar eru og hafa alltaf verið mannréttindaflokkur. Við leggjum áherslu á að tryggja mannréttindi fyrir öll, með sjálfsákvörðunarrétt einstaklingsins í forgrunni. Við teljum að öll eigi að hafa raunverulegt tækifæri til að taka þátt í ákvörðunum sem þau varða og sem varða samfélagið sem þau búa í.
Píratar leggja sérstaka áherslu á réttindi hinsegin fólks, barna og ungmenna. Öll eigum við að njóta verndar gegn mismunun, ofbeldi, einelti og hatursorðræðu óháð aldri, fötlunum, kyni, kynvitund og kynhneigð. Nú er hinsegin samfélagið að upplifa mikið bakslag, hatursorðræða gagnvart hinsegin fólki hefur aukist og mætir minni andstöðu en áður; því þarf að breyta.
Píratar vilja tryggja mannréttindi borgarbúa óháð uppruna þeirra, litarhætti, þjóðerni, menningarlegs bakgrunns eða hvers kyns flokkunar sem byggð er á kynþáttahyggju. Öll hafa jafnan rétt til þátttöku í samfélaginu og þarf að tryggja að fólk sem skilur ekki íslensku geti nálgast upplýsingar sem þau varða og haft áhrif á ákvarðanatöku í samfélaginu sem þau búa í. Sporna þarf gegn hatursorðræðu og fordómum.
Píratar ætla að halda áfram að hafa mannréttindi í forgrunni í allri ákvarðanatöku í borginni.
Markmið Pírata er skýrt: að gera borgina að öruggu, réttlátu og inngildandi samfélagi fyrir öll.
Fjármögnum hinsegin félagsmiðstöðina
Eflum Flotann
Tryggjum að borgin vinni kerfisbundið gegn hatursorðræðu
Tryggjum að komu hagsmunasamtaka að ákvörðunartöku
Tryggja innleiðingu aðgengisstefnu og algilda hönnun
Innleiðum fjölmenningarstefnuna
Skoðum stöðu hinsegin eldri borgara og tryggja að þau geti lifað örugg á ellilífsárunum sínum.
Tryggjum að mannréttindastefnan nær utan um alla hópa og starfsemi borgarinnar

