Back to All Events

Græna gangan

  • Arnarhóll Reykjavík, Reykjavíkurborg, 101 Iceland (map)

Frambjóðendur Pírata láta sig að sjálfsögðu ekki vanta á Grænu gönguna á Sumardaginn fyrsta.

Um viðburðinn af síðu Landverndar, sem stendur fyrir göngunni:
Sumardagurinn fyrsti 2026 verður tileinkaður náttúru Íslands á allan hátt!

Þetta verður baráttudagur náttúrunnar sem byrjar með öflugri grænni göngu í anda kröfugöngunnar miklu 2013. Við viljum að allir landsmenn sem komast láti sig ekki vanta og gangi með okkur í miðbænum með græna fána á lofti.

 

Öll náttúruverndarhreyfingin í landinu og önnur félög vinna hörðum höndum að stærstu náttúrugöngu sem haldin hefur verið í fjölmörg ár.

Fólk safnast saman við Arnarhól kukkan 13:30 og við byrjum að ganga niður í Hljómskálagarð klukkan 14:00. Þar tekur á móti okkur hvatning til þess að halda náttúrunni okkar sem hæst á lofti í öllum málum því hún á undir högg að sækja og hún þarf fleiri raddir.

Við viljum að rödd náttúrunnar heyrist yfir holt og hæðir þennan dag og blási lífi í náttúruverndina á Íslandi inn í sumarið

 

Þetta er dagurinn sem allir ættu að taka frá!
Dagurinn sem við göngum fyrir náttúruna og framtíðina.


Nánar hér: https://landvernd.is/vidburdur/graena-gangan/

Previous
Previous
22 April

Föndrað með frambjóðendum í Ráðhúsinu

Next
Next
23 April

Fundur um náttúruvernd eftir Grænu gönguna