Back to All Events

Tölum um hönnun og arkitektúr: Samtal um borgargæði með sérfræðingum og oddvitum í Reykjavík

  • Píratar 1 Bjargargata Reykjavík, Reykjavíkurborg, 101 Iceland (map)

Hvernig sköpum við borgargæði með arkitektúr og hönnun? Í aðdraganda kosninga þá beinum við sjónum að borgargæðum og hvernig beita má arkitektúr og hönnun með markvissum hætti við uppbyggingu borgarinnar til að skapa gæði og gott samfélag fyrir íbúa, börn og fullorðna. 

Hvernig getur hönnun og arkitektúr verið leiðandi breytur í að auðvelda og greiða leiðir fólks og fyrirtækja; hvað varðar búsetu, menntun, velferð, atvinnutækifæri, afþreyingu, samgöngur og öryggi?

Fyrirlesarar: 

Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður, Pláss
Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, teiknistofan Stika
Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt, Landslag

Þrír fyrirlesarar fjalla um og sýna góð dæmi hér á landi um hvernig arkitektúr og hönnun geta skapað gæði og gott mannlíf. Í framhaldi verður oddvitum stjórnmálaflokkanna í borginni boðið í pallborðsumræður um málefnið.

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar
Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks
Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata
Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir, 2. sæti Miðflokkur
Líf Magneudóttir, 2. sæti Vinstrið
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingar
Sigfús Aðalsteinsson, oddviti Okkar borg
Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalista

Bergur Finnbogason, listrænn stjórnandi CCP leiðir umræður.

Í haust fór Miðstöð hönnunar og arkitektúrs af stað með opna fyrirlestra í Grósku sem fjalla um áhugaverð málefni á sviði á hönnunar og arkitektúr, tökum stöðuna hvar við erum stödd og á hvaða vegferð við erum.

Gróska, Vísindagarðar og Bláa Lónið eru samstarfsaðilar Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og fyrirlestraraðarinnar Tölum um hönnun og arkitektúr.


Nánar hér.

Previous
Previous
27 March

Frambjóðendur Pírata mæta á Lýðráðstefnu í MH

Next
Next
14 April

Formaður Pírata heimsækir NPA miðstöðina