Andrés Ingi Jónsson

Þingmaður - Reykjavík norður

Andrés Ingi er Ölfusingur sem býr með vísitölufjölskyldunni sinni í Laugardalnum. Elskar græn stjórnmál, róttækar raddir og karókí.

Andrés var fyrst kjörinn á Alþingi árið 2016 en hefur verið hluti af þingflokki Pírata frá 2021.

Andrés Ingi hefur lagt stund á heimspeki og stjórnmálafræði og var hann gerður heiðursfélagi Politicu, félags stjórnmálafræðinema, árið 2022.

Hlutverk

  • Þingmaður

  • Fulltrúi í forsætisnefnd (5.varaforseti Alþingis)

  • Fulltrúi í umhverfis- og samgöngunefnd

  • Varaformaður Íslandsdeildar NATO-þingsins

  • Fulltrúi í Þingvallanefnd

Menntun

  • Stúdentspróf FSU 1998

  • BA-próf í heimspeki HÍ 2004.

  • Nám í þýsku við Freie Universität Berlin 2004–2005.

  • Nám í heimspeki við Humboldt-Unversität zu Berlin 2005–2006.

  • MA-próf í stjórnmálafræði University of Sussex 2007.

Starfsferill

  • Starfsmaður á geðdeildum Landspítala 2002–2004.

  • Blaðamaður á 24 stundum 2007–2008.

  • Verkefnisstjóri hjá Alþjóðamálastofnun HÍ 2009.

  • Upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis 2009–2010.

  • Aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra 2010.

  • Nefndarritari hjá Stjórnlagaráði 2011.

  • Aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra 2011–2013.

  • Ýmis verkefni fyrir landsnefnd UNICEF á Íslandi 2015–2016.

Pistlar frá Andrési Inga