Snöggskilnaðir slá í gegn

Ást og lögfræði eru ekki alltaf besta blandan. Þannig hefur það lengi verið í hjúskaparlögum að þröskuldurinn til að ganga í hjónaband er frekar lágur, en til að losna úr því hefur þurft að leggja talsvert á sig. Grunnútfærslan hefur verið nokkurs konar reynslutími – skilnaður að borði og sæng – þar sem fólk sem er búið að ákveða að hætta saman þarf að vera gift í hálft ár í viðbót áður en það fær endanlega lögskilnað. Eina leiðin framhjá þessu hefur verið með því að annar aðilinn játi á sig hjúskaparbrot eða ofbeldi.

Fyrir tveimur árum samþykkti Alþingi að breyta hjúskaparlögum þannig að það væri jafn lítill reynslutími fyrir því að losna úr hjónabandi og að komast í það. Ef við treystum fullorðnu fólki til að vita hvort það vilji giftast hvort öðru, þá hljótum við að geta treyst því til að meta sjálft hvenær ástareldurinn er slökknaður. Þessi lagabreyting var óvenjuleg vegna þess að hún kom frá stjórnarandstöðunni, tillaga mín um snöggskilnaði fékk að fljóta með frumvarpi Viðreisnar með fleiri leiðum til að einfalda skilnaðarferlið.

Staðan er auðvitað sú að fólk ákveður ekki að sækja um skilnað að gamni sínu, heldur að vandlega athuguðu máli þegar þau vita sjálf að hjónabandið er búið. Það er mikill bjarnargreiði að halda fólki föstu saman með skilnaði að borði og sæng, því þar myndast oft aðstæður fyrir öll samskipti að súrna á milli hjónanna þannig að endanlegur lögskilnaður verður erfiðari. Í staðinn hefur fjöldi fólks gripið til þess ráðs að játa á sig hjúskaparbrot án þess að nokkuð slíkt sé til staðar – því það hefur verið besta hraðleiðin í gegnum skilnaðarferlið. Frá 1. júlí á síðasta ári hefur þess ekki þurft, heldur hafa hjón getað fengið skilnað án undanfarandi skilnaðar að borði og sæng. Þau þurfa bara að vera sammála um það og hafa komið sér saman um forsjá fyrir börnum, eignaskiptum og annað praktískt. Og hver er útkoman?

Niðurstaðan gæti ekki verið skýrari – það var gríðarleg þörf fyrir snöggskilnaði. Í dag kom fram í svari dómsmálaráðherra að á seinni helmingi ársins 2023 var sótt um 765 hjónaskilnaði. Af þeim völdu 250 hjón skilnað án undanfara. Snöggskilnaðurinn varð fyrir valinu hjá þriðjungi þeirra sem sóttu um að skilja seinni helming síðasta árs. Við megum vera ánægð með að hafa náð í gegnum Alþingi þessari litlu breytingu á hjúskaparlögum sem einfaldar lífið hjá fólki.

Andrés Ingi Jónsson

Þingmaður Pírata frá 2021

Forrige
Forrige

Hvað er að þessari pólitík?

Næste
Næste

Skömmin er ger­enda