Skömmin er gerenda
Alveg frá því að snjallsímar og samfélagsmiðlar komu til sögunnar hefur aukning orðið á því að fólk sé kúgað með nektarmyndum eða kynlífsmyndböndum. Síðustu daga hefur verið fjallað um í fjölmiðlum að nú séu gerendur að herja í auknum mæli á drengi og fjárkúga þá. Við þurfum að átta okkur á því að þeir drengir og stúlkur sem að segja frá ofbeldinu er bara lítið brot af þeim sem að eru að verða fyrir kúgun.
Skömm mikið vandamál
Þegar að börn verða fyrir ofbeldi upplifa þau oft skömm, eins og ábyrgðin sé þeirra á einhvern hátt, það er auðvitað rangt en þessi skömm er þó oft til staðar.
Börn sem lenda í slíku ofbeldi fara stundum í sjálfsásakanir og niðurrif. Einmanaleikinn verður oft óbærilegur því að enginn skilur hvað þau eru að ganga í gegnum. Þau þora oft ekki að segja frá og biðja um hjálp. Þau upplifa mikið óöryggi og hafa áhyggjur af því hver hafi séð myndirnar og hvar þær séu niðurkomnar.
Stafrænu kynferðisofbeldi ber að taka alvarlega
Þessari þróun ber að taka alvarlega. Við vitum um dæmi um einstaklinga sem lent hafa í stafrænu kynferðisofbeldi sem börn og hafa tekið líf sitt seinna á lífsleiðinni. Þetta er leyndur faraldur og hann er hljóður en hann er grafalvarlegur og getur haft langvarandi áhrif á líf fólks. Það er mikilvægt að við séum meðvituð um skaðann og að þolendur fái þjónustuna sem þeim ber.
Málin þurfa að vinnast hratt og örugglega í dómskerfinu
Það er mikilvægt að lögin taki mið af alvarlegum afleiðingum á einstaklinga sem verða fyrir kúgun.
Réttarkerfið tekur ekki nógu hratt og vel á þessum málum og ekki er nægilega vel tekið utan um þolendur. Þolendur eiga skilið að vera aðili máls og fá upplýsingar um framgöngu máls.
Fræðsla er lykilatriði
Við þurfum átak í fræðslu um þessa glæpi í skólum landsins og tryggja það að börn upplifi sig örugg til að segja frá. Börn upplifi að hver sem er geti lent í því að verða fórnarlamb stafræns kynferðisofbeldis og enginn sé öruggur frá blekkingum gerenda. Foreldrar þurfa einnig að vera óhrædd að eiga þetta samtal við unglingana sína og börnin þar sem að oft eiga börn erfitt með að opna á erfið samtöl en fullorðnir geta það. Hér eru hlekkir á gagnlegar upplýsingar fyrir alla að kynna sér.
Við þurfum að vinna markvisst að því að eyða þolendaskömm. Það er með opnu samtali sem að við hjálpum einstaklingum sem að verða fyrir stafrænu kynferðisofbeldi að skila skömminni þar sem að hún á heima.