Kynningarfundur frambjóðenda mun fara fram sunnudaginn 23.nóvember og verður haldinn á Hverfisgötu 39 í Reykjavík og hefst fundurinn kl. 13.00 og stendur til kl.14.00.
Fundurinn er haldinn í þeim tilgangi að gefa félagsfólki Pírata tækifæri til að kynnast frambjóðendum, áherslum þeirra og sýn á framtíð flokksins.
Við hvetjum félagsfólk til að mæta, fylgjast með og taka þátt.
Hver frambjóðandi fær 5 mínútur til að kynna sig.
Að kynningum loknum verða lagðar spurningar fyrir frambjóðendur, bæði af fundarstjóra og fundargestum.
Fundarstjóri verður Kristín Ólafsdóttir
Fundinum verður streymt og verður fundarhlekkur sendur á félagatalið fyrir fundinn.
Við ítrekum að framboðsfrestur er til og með laugardeginum 22.nóvember og hefur hver sá sem hefur verið í félaginu í eitt ár eða lengur við lok framboðsfrests, rétt á að bjóða sig fram til formanns.
Sjá nánar hér: https://piratar.is/umraeda/frambo-skast
Athugið að kynningar varaformannaframbjóðenda og stjórnar fara fram á auka aðalfundinum 29. nóvember samkvæmt dagskrá.