Aðalfundur Pírata og PÍR 25 og kynning á fyrirhuguðum vinnufundum
Kæru Píratar,
Framkvæmdastjórn og Píratar í Reykjavík boða til sameiginlegs aðalfundur.
Dagsetning: 20.september
Tími: kl. 15:00–18:00 (að loknum fundi verður boðið upp á kvöldmat og síðan skemmtun)
Staðsetning: Grótta, Suðurströnd 8, Seltjarnarnesi
Aðgengi: Fullt aðgengi fyrir hjólastóla
Dagskrá aðalfundar
15:00 – Fundur settur
Kosning fundarstjóra og fundarritara (Píratar)
Kosning fundarstjóra og fundarritara (PíR)
15:05– Skýrsla stjórna og nefnda
Skýrsla stjórnar Pírata
Skýrsla stjórnar PíR
Skýrsla oddvita Reykjavikur
Skýrsla oddvita Kópavogs
15:35– Reikningar lagðir fram
Reikningar Pírata lagðir fram til samþykktar
Reikningar PíR lagðir fram til samþykktar
15.45 – Kaffihlé og spjall
16.00 – Tillögur
Kynning á tillögum starfshóps á gildum og áherslum Pírata
Umræða um tillögur
Kynning á lagabreytingartillögum á lögum Pírata
Umræður um lagabreytingartillögur
17:00 – Kosningar
Kynning á frambjóðendum
Kosning skoðunarmanna reikninga (Píratar)
Kosning í úrskurðarnefnd (Píratar)
Kosning í stjórn PíR
Kosning skoðunarmanna reikninga (PíR)
Lagabreytingartillögur lagðar fram til samþykktar
17:30– Önnur mál
Önnur mál Pírata
Önnur mál PíR
17:55 – Fundi slitið
18:00 – Kvöldmatur
Eftir kvöldmat – Skemmtun og samvera
ATHUGIÐ!
Sú breyting verður gerð á komandi aðalfundi að eingöngu verður hægt að kjósa á fundinum sjálfum. Aðilar búsettir á landsbyggðinni eða aðrir sem sjá sér ekki fært að mæta geta gefið öðrum fundargesti umboð til að koma sínu atkvæði til skila.
Þau sem hyggjast fela öðrum umboð skulu senda tölvupóst þess efnis ásamt nafni og kennitölu sinni og umboðsmanni á piratar@piratar.is
Boð á vinnufundi
Boðið er á tvo vinnufundi. Sá fyrsti vegna lagabreytingatillaga og sá seinni vegna vinnu við áherslur og gildi Pírata. Framkvæmdastjórn stefnir á að kynna niðurstöður beggja hópa á Aðalfundi Pírata og PíR þann 20. september.
Fundur um lagabreytingartillögur verður haldinn mánudaginn 1. september klukkan 16 í húsnæði Pírata, Hverfisgötu 39.
Um er að ræða þrjár megin breytingar sem eru til umræðu.
Tillaga snýr að því að taka upp embætti formanns og varaformanns
Tillaga snýr að því að sameina stefnu- og málefnanefnd og framkvæmdastjórn flokksins í eina stjórn, sem færi með verkefni beggja og færi með pólitískt umboð.
Tillaga snýr að því að taka kosningakerfi flokksins, x.piratar.is, úr notkun, og skrifa amk. bráðabirgðaákvæði um það hvernig haga skuli kosningum innan flokksins.
Fundur um áherslur og gildi Pírata verður haldinn mánudaginn 8. september klukkan 16 í húsnæði Pírata, Hverfisgötu 39.
Því félagsfólki sem hefur hug á því að koma að þessari vinnu er boðið að mæta á fundina, en framhaldsfundir verða ákveðnir í framhaldinu eftir þörfum.