Tilbage til Alle begivenheder

Auka-auka-aðalfundur


Auka aðalfundur Pírata
 

Boðað er til auka aðalfundar Pírata þann 29.nóvember nk. Kl.13 - 17.00 að Veislusmáranum, Sporhömrum 3. Gott aðgengi er tryggt

Fundi verður streymt og mun skráðum fundargestum í fjarfund sendur hlekkur. 

Nauðsynlegt er að skrá sig á aðalfundinn. Hægt er að skrá sig hér: https://forms.gle/ePrvyykdCKQDsLbf8

Kjörstjórn mun senda út leiðbeiningar vegna kosninga til embætta og munu leiðbeiningar einnig vera kynntar á fundinum. 

Athugið að kosning til formanns hefst viku fyrir auka aðalfund að lokinni kynningu. Nánari upplýsingar verða sendar í sér tölvupósti. Dagskrá gæti tekið breytingum.


DAGSKRÁ

13:00 – 13:05 Fundur settur, dagskrá og verklag kynnt

13:05 – 13:10  Kosning fundarstjóra og fundarritara

13:10 – 13:12 Staðfesting á lögmætri fundarboðun

13:12 – 13:15 Dagskrá staðfest

13:15 – 13:25 Kjörstjórn kynnir niðurstöðu kosningar til formanns.

Kosning varaformanns

13:25 – 13:30 Opnað fyrir framboð: Þeir sem hlutu ekki kjör til formanns fá kost á sér; einnig tekin við nýjum framboðum ef lög heimila

13:30 – 13:38 Kynningar frambjóðenda 

13:38 – 14:10 Rafræn atkvæðagreiðsla 

14:10 – 14:15 Sannprófun kjörstjórnar 

14:15 – 14:20 Niðurstaða kosningar til varaformanns kynnt

Kosning stjórnar Pírata

14:20 Opnað fyrir framboð í stjórn (þ.m.t. þeir sem hlutu ekki kjör sem varaformaður)

14:20 – 14:35 Kynningar frambjóðenda í stjórn 

14:35 – 15:10 Rafræn atkvæðagreiðsla 

15:10 – 15:15 Niðurstöður stjórnar-kosninga kynntar

15:15 – 15:30 Fundarhlé 

15:30 – 15:50  Ársskýrsla stjórnar – kynning og spurningar

15:50 – 16:00 Ársreikningur lagður fram til samþykktar – kynning gjaldkera/endurskoðanda og spurningar

16:00 – 16:05 Ársreikningur lagður fram til samþykktar 

16:05 – 16:10  Óskað eftir framboðum til skoðunarmanns reikninga 

16:10 - 16:20 Gengið til kosninga vegna skoðunarmanns reikninga

16:20 – 16:30 Hlé 

16:30 – 16:50 Önnur mál 

16:50 – 17:00 Lokaorð formanns 

17:00 Fundi slitið



Forrige
Forrige
20. september

Aðalfundur Pírata og PÍR 25