Olga Margrét
Kristínardóttir Cilia
5. sæti lista Pírata í Reykjavík 2026.
Olga er lögmaður og stendur fast á því að mannréttindi þurfa að vera í forgrunni í allri ákvarðanatöku. Huga þarf að jaðarsettum hópum og standa vörð um mannréttindi fyrir alla borgarbúa.
Olga sér borgarstjórn fyrst og fremst sem þjónustuveitanda og gerir kröfu um að gagnsæi og ábyrgð séu ófrávíkjanlegt skilyrði í öllum störfum borgarstjórnar.
Helstu áherslumál Olgu eru réttindi hinsegin fólks og skaðaminnkun. Hún telur að fólk vilji fyrst og fremst fá að vera til á eigin forsendum og vill skapa borg þar sem það getur orðið möguleiki.

