Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir
Þingmaður - Reykjavík suður
Arndís er þingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður, situr í velferðarnefnd og þingmannanefndum EES/EFTA/ESB, en sat áður í allsherjar- og menntamálanefnd. Arndís er innblásin af grunnstefnu Pírata og berst fyrir mannréttindum, virðingu við réttarríkið, persónuvernd og eftirliti með störfum lögreglu. Helstu áherslur Arndísar á þingi lúta að réttindum einstaklinga í viðkvæmri stöðu, einkum útlendinga, fólks með geðraskanir og barna.
Hlutverk
Þingmaður
Fulltrúi í velferðarnefnd
Fulltrúi í Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES
Menntun
Stúdentspróf VÍ 2003.
BA-próf í lögfræði HÍ 2007. Mag. jur.-próf í lögfræði HÍ 2009.
LLM-próf í mannréttindum frá Kaþólska háskólanum í Leuven 2013.
Starfsferill
Fulltrúi á LEX lögmannsstofu 2009–2011.
Lögfræðingur á Barnaverndarstofu 2011.
Lögfræðingur í innanríkisráðuneyti 2011–2012.
Lögfræðingur hjá Rauða krossinum á Íslandi 2014–2020.
Sjálfstætt starfandi lögmaður 2021.
Flóttamannanefnd 2012.
Kærunefnd greiðsluaðlögunarmála 2010–2014.
Varamaður í úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 2010–2014.
Framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna 2004–2005.
Stúdentaráð HÍ 2005–2007.
Sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum á Íslandi 2009–.
Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2021 (Píratar).