Það er ákvörðun að beita mannvonsku

11 ára drengur með Duchenne-hrörnunarsjúkdóminn liggur á Barnaspítalanum og bíður brottvísunar sinnar af landinu. Sérfræðingar innan heilbrigðiskerfisins, hagsmunasamtök og almenningur hafa fordæmt brottvísun drengsins bæði vegna heilbrigðis- eða mannúðarsjónarmiða. Það fylgir því mikil mannvonska að brottvísa drengnum og fjölskyldu hans. Því fylgir enn meiri mannvonska að hunsa álit sérfræðinga sem ítrekað hafa bent á að brottvísunin muni hafa alvarleg og langvarandi áhrif á líf og heilsu drengsins. Brottvísunin verður framkvæmd um leið og hann losnar af Barnaspítalanum í Reykjavík.

Drengurinn heitir Yazan Tamimi og er af palestínskum uppruna. Foreldrar Yazans lögðu af stað í þá miklu hættuför að flýja frá Gaza-svæðinu með fatlaðan dreng sinn meðferðis. Þau komust til Íslands heil á húfi og hafa fundið öryggi og stuðning hér. Yazan á heima á Íslandi. Hér fær hann vandaða heilbrigðisþjónustu sem er honum lífsnauðsynleg. Fólk með Duchenne-sjúkdóminn lifir almennt ekki löngu lífi, og hafa sérfræðingar bent á að verði hið minnsta rof á þjónustu Yazans muni það minnka lífslíkur hans og stytta líf hans. Aðstæður Yazans og fjölskyldu bjóða því ekki upp á brottflutning af landinu - það beinlínis stofnar lífi drengsins í hættu. Samt sem áður verður brottvísun drengsins sett í framkvæmd hjá stoðdeild Ríkislögreglustjóra um leið og hann losnar af spítalanum.

Brottvísað til lands sem þau ekki þekkja

Brottvísa á Yazan og fjölskyldu hans til Spánar, lands sem þau ekki þekkja nema í mýflugumynd. Vegna verkfalla á flugvellinum við komuna til Spánar neyddist fjölskyldan til að dvelja lengur á Spáni en þau gerðu ráð fyrir. Vegabréf þeirra var af þeim sökum stimplað á flugvellinum á Spáni sem í stuttu máli veldur því að Spánn beri ábyrgð á hælisumsókn fjölskyldunnar samkvæmt Dyflinnar-reglugerðinni. Það er þó fátt sem ekkert sem hamlar íslenskum stjórnvöldum að ákveða að Ísland haldi ábyrgðinni á umsóknum fjölskyldunnar. Íslandi er heimilt að afgreiða umsóknirnar hér og veita fjölskyldunni vernd. Þetta er því ákvörðun um að beita þeirri mannvonsku að brottvísa Yazan og fjölskyldu hans. Ákvörðun um að líta fram hjá mannúðarástæðum. Ákvörðun um að taka ekki tillit til sérstakra aðstæðna. Ákvörðun um að beita mannvonsku.

Kerfi án mannúðar

Með nýlegum breytingum á lögum um útlendinga nr. 80/2016 er búið að taka alla mannúð úr kerfinu. Búið er að þrengja að rétti flóttafólks til fjölskyldusameiningar, fella á brott ákvæði sem tekur til sérstakra tengsla við Ísland og sérstakra ástæðna, og torvelda aðgengi kvenna og barna að löglegum og öruggum leiðum úr lífshættu í skjól. Kerfið er án mannúðar.

Píratar hafa markvisst barist fyrir því á þinginu að mannúð sé höfð að leiðarljósi við hvers kyns lagasetningu og að lögin innihaldi svigrúm fyrir stjórnvöld til að taka tillit til sérstakra aðstæðna mismunandi einstaklinga. Píratar hafa varað við afleiðingunum en þær eru að raungerast beint fyrir framan okkur og birtast í því að brottvísa eigi ungum dreng í hjólastól gegn læknisráði. Ætlum við í alvöru að láta bjóða okkur kerfi sem er án mannúðar? Kerfi sem brottvísar fólki sama hvað? Kerfi sem brýtur á mannréttindum fullorðinna og barna? Kerfi sem beitir flóttafólk mannvonsku?

Yazan á heima á Íslandi. Við viljum hafa Yazan og fjölskyldu hans hér.

Gísli Rafn Ólafsson

Þingmaður Pírata frá árinu 2021

Forrige
Forrige

Ríkisstjórn ríka fólksins

Næste
Næste

Hvað getum við tekið á móti mörgum?