Við kynnum með stolti: nýtt merki Pírata!

Píratar hafa tekið upp nýtt merki, sem er allt í senn stílhreint, skýrt og í anda flokksins.

Aðalmerki Pírata er nú dökkfjólublár fáni á fjólubláum grunni en glöggir munu taka eftir að fáninn, sem hefur verið aðalsmerki Pírata frá stofnun, hefur skerpst og harðfiskurinn vikið fyrir opnum fána sem táknar frelsi, hugrekki og áform Pírata að vera í stafni þegar kemur að málefnum framtíðarinnar, mannréttindum og samfélagsbreytingum. 

Endurmörkunin var unnin með auglýsingastofunni Cirkus en í vinnunni varð líka til slagorð flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor; Bestum borgina.

„Samstarfið við Pírata hefur verið frábært. Frá fyrsta fundi var augljóst að flokkurinn stæði á tímamótum og að mikilvægt væri að draga fram kjarnann í því sem Píratar standa fyrir. Afraksturinn er nýtt merki, hnitmiðað slagorð og skýr samskiptastefna sem endurspeglar stemninguna og eldmóðinn í flokknum fyrir komandi borgarstjórnarkosningar,“ segir Rósa María Árnadóttir, framkvæmdastjóri Cirkus. 

Endurmörkunin kemur í kjölfar nýs skipulags Pírata, sem kusu sinn fyrsta formann á haustmánuðum. Fáninn er merki um nýja tíma hjá Pírötum. Það blása ferskir vindar um flokkinn þessa dagana og þá er gott að merki Pírata sé fáni sem blaktir við hún. Við erum kraftmikil og tilbúin í næsta kafla stjórnmálanna, óhrædd við að taka slaginn gegn upprisu fasisma í heiminum og staðráðin í að standa vörð um mannréttindi,“ segir Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður Pírata. 

Finndu nýja merkið í bæði prent-og vefupplausn hér.

Next
Next

Líf og fjör í prófkjörslokafögnuði Pírata