PíR opnar fyrir prófkjör vegna borgarstjórnarkosninga
Stjórn Pírata í Reykjavík samþykkti á fundi sínum 29. janúar sl. að opna fyrir framboð í prófkjör vegna borgarstjórnarkosninga sem haldnar verða 16. maí nk.
Framboðsfrestur er til kl. 14:00 þann 14. febrúar 2026. Í kjölfarið verða kynningar á frambjóðendum frá 15. - 26. febrúar. Kosningar munu standa yfir frá 26. febrúar til 6. mars.
Frekari upplýsingar má nálgast í prófkjörsreglum Pírata í Reykjavík sem má nálgast hér.
Ef einhverjar spurningar vakna má alltaf hafa samband við stjórn í gegnum reykjavik@piratar.is
Píratarkveðjur,
Stjórn Pírata í Reykjavík