Ályktun stjórnar Pírata um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Evrópusambandsins

Stjórn Pírata fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Það er grundvallaratriði í lýðræðislegu samfélagi að stórar ákvarðanir um framtíð landsins séu teknar með beinni aðkomu þjóðarinnar.

Píratar leggja ríka áherslu á að umræðan sem fram undan er verði opinská, heiðarleg og byggð á staðreyndum. Almenningur á rétt á skýrum og gagnsæjum upplýsingum svo fólk geti myndað sér upplýsta skoðun – án hræðsluáróðurs eða rangfærslna.

Á tímum aukinnar óvissu í alþjóðamálum gegnir Evrópusambandið mikilvægu hlutverki. Fyrir Ísland getur aðild falið í sér aukin tækifæri til samvinnu, sterkari stöðu í alþjóðlegum áskorunum og meiri stöðugleika í efnahags- og öryggismálum.

Píratar hvetja til málefnalegrar umræðu þar sem kostir og gallar eru ræddar af hreinskilni. Að lokum er það þjóðin sjálf sem á að taka upplýsta ákvörðun um hvaða leið Ísland velur til framtíðar.

Next
Next

Kristinn Jón nýr oddviti Pírata í Reykjavík