Úrslit eru ljós í prófkjöri Pírata sem lauk kl 20.00 í kvöld.
Tíu voru í framboði og er niðurstaða allra tíu sætanna bindandi
nema frambjóðandi óski eftir að taka ekki sæti á lista.
Það var Kristinn Jón Ólafsson sem bar sigur úr býtum í prófkjörinu.
Í öðru sæti var Alexandra Briem og í því þriðja
hafnaði Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns.
Á næstu dögum koma Píratar í Reykjavík til með að kynna fullskipaðan framboðslista
til borgarstjórnarkosninga í vor.