Félagsgjöld 2023
Ágætu Píratar,
Nú er komið að því að tala um félagsgjöld. Félagsgjöld Pírata verða með öðru sniði í ár en áður hefur verið. Í stað þess að senda út valgreiðsluseðla með fastri upphæð á alla félagsmenn höfum við ákveðið að innheimta félagsgjöldin í formi frjálsra framlaga. Með breyttu formi félagsgjalda fær félagsfólk þannig vald yfir hvort og hversu mikið það kýs að styrkja Pírata en jafnframt myndast kostnaðarhagræðing í rekstri Pírata. Félagsgjöldin eru mikilvægur þáttur í rekstri flokksins og við gerum því ákall til félaga að leggja okkur lið ef þau hafa getu til.
Þeim félagsmönnum sem hugnast að styrkja Pírata standa eftirfarandi möguleikar til boða:
Mánaðarlegt framlag að frjálsri upphæð með Konto. Sjá https://piratar.is/styrkja-pirata/
Stakt framlag að frjálsri upphæð með millifærslu á reikningsnúmer 0133-26-011913 kennitala 461212-0690
Árlegt félagsgjald að frjálsri upphæð með kröfu sem birtist í netbanka skrá sig hér https://forms.gle/3PmgJpzZ4ZKxFNkc9
Vinsamlegast gætið að árlegu hámarki styrkja til stjórnmálaflokka sem er 550.000 kr. á ári.
Kær kveðja og innilegar þakkir fyrir stuðninginn
Fyrir hönd framkvæmdastjórnar og fjármálaráðs,
Tinna Helgadóttir