Af hverju Píratar?
Daníel Þröstur skrifar á visir.is
Þetta er spurning sem ég og eflaust margir Píratar eru spurðir reglulega, enda er þetta mjög góð spurning sem ég velti oft sjálfur fyrir mér. Málið er að enginn annar flokkur er, eins og staðan er núna, raunhæfur kostur.
Alvöru breytingar.
Þetta sést fyrst og fremst í stefnu Pírata. Of lengi hafa flokkar skipst á að vera í ríkisstjórn án þess að alvöru breytingar séu gerðar. Píratar er einn sá flokkur sem getur komið okkur út úr þessari stöðnun með því að tala hreint út og gera það sem skiptir máli. Til dæmis erum við eini flokkurinn sem vill banna opið sjókvíaeldi. Það hefur neikvæð umhverfisáhrif í fjörðum og er í þessum töluðu orðum að leiða til útrýmingar íslenska laxastofnsins með genablöndun við norskan stofn. Við skiljum samt að mörg störf koma með sjókvíaeldi og því viljum við samhliða banninu veita fyrirtækjum hvata til að færa sig upp á land og þar með varðveita störf sem sjókvíaeldi býður upp á.
Lýðræði, ekki geðþóttaákvörðun formanns.
Einnig erum við með þá sérstöðu að við erum eini flokkurinn án formanns. Kraftur flokksins kemur frá okkar öflugu grasrót sem hefur áhrif á stefnumál okkar og er með í ferlinu frá A til Ö. Þetta sést best á stefnumótunarferli Pírata. Til dæmis er venjan að hafa opna félagsfundi þar sem hægt er að ræða og leggja til breytingar á stefnumálum flokksins. Eftir það fara mál í kosningu sem allir meðlimir flokksins geta tekið þátt í. Þetta tryggir ekki bara að stefnumál okkar taka tillit til sem flestra aðila heldur líka að stefna flokksins breytist ekki yfir eina nótt á forsendum nýs formanns.
Lokaorð
Þessi dæmi sem nefnd eru hér, eru bara örfá af mörgum sem hægt væri að nefna varðandi sérstöðu Pírata og má lesa meira um stefnumál Pírata á heimasíðu flokksins. Við erum á mikilvægum tímamótum þar sem þarf að gera breytingar eins og að bæta heilbrigðiskerfið, taka menntakerfið í gegn og svo margt annað. Ég tel að margir flokkar gætu gert góða hluti, en enginn gæti komið með þær nauðsynlegu breytingar sem kerfin þurfa, nema Píratar, enda eru Píratar flokkur sem hefur aldrei tekið á móti fjármunum frá fyrirtækjum og er því ekki bundinn af sérhagsmunum. Flokkur sem hefur það eina markmið að finna bestu lausnina til að leysa vandinn og hjálpa fólki þvert á pólitíska ásinn.
Höfundur er framhaldskólanemandi og meðlimur Pírata.