Prófkjörsreglur

Framboð Pírata til borgarstjórnarkosninga 2026

Útbúið af: Olga Margrét Cilia 

Fyrir: Pírata í Reykjavík

Samþykkt: 29. janúar 2026 af stjórn Pírata í Reykjavík

Prófkjörsreglur og leiðbeiningar fyrir framboð í prófkjöri Pírata vegna borgarstjórnarkosningar 2026. 

---------------------------------------------------------------------------

Stjórn Pírata í Reykjavík boðar til prófkjörs til að velja frambjóðendur á lista í Reykjavíkurkjördæmi fyrir borgarstjórnarkosningar 16. maí 2026. Á félagsfundi þann 24. janúar 2026 var samþykkt að veita stjórn Pírata í Reykjavík heimild til að rýmka tímafresti í lögum félagsins varðandi prófkjör til að tryggja undirstöðu og innviði til útfærslu prófkjörs. Þátttakendur og félagsfólk eru hvött til að fylgjast með upplýsingum um dagsetningar og viðburði tengdum prófkjöri á póstlista Pírata, piratar.is og samfélagsmiðlum.

Tímalínan er því lögð fram með fyrirvara um breytingar:

31. janúar: Opnað fyrir tilkynningu á framboði.

14. febrúar, kl.14: Lokað fyrir tilkynningu á framboði.

15. febrúar – 26. febrúar: Kynning á frambjóðendum

26. febrúar - 6. mars : Kosningar á x.piratar.is

6. mars: Niðurstöður kosninga kynntar.

---

Þau sem hyggjast bjóða sig fram í prófkjöri Pírata í Reykjavík eru vinsamlegast beðin um að kynna sér prófkjörsreglur þessar. Ef einhverjar spurningar vakna um prófkjörsreglur, framkvæmd eða annað hafið þá samband við stjórn Pírata í Reykjavík reykjavik@piratar.is. Svör við spurningum verða birtar á FAQ síðu félagsins á piratar.is 

Kjörgengi

Kjörgengi í prófkjöri Pírata í Reykjavík hefur hver sem er skráður félagi í Pírata í Reykjavík og uppfyllir lagalegar kröfur um kjörgengi. 

  1. Ekki er gerð krafa um að frambjóðendur hafi verið skráðir í félagið í tiltekinn tíma. Er því öllum frjálst að skrá sig í Pírata í Reykjavík og tilkynna framboð áður en kosningar hefjast. 

  2. Samkvæmt kosningalögum nr. 112/2021 er hver sá sem hefur kosningarétt í sveitarfélaginu kjörgengur til sveitarstjórna. Það er:

    1. Hver íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri og á skráð lögheimili í sveitarfélaginu. 

    2. Hver danskur, finnskur, norskur og sænskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri og á skráð lögheimili í sveitarfélaginu. 

    3. Hver erlendur ríkisborgari sem átt hefur skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfleytt fyrir kjördag, sem náð hefur 18 ára aldri og á skráð lögheimili í sveitarfélaginu. 

    4. Auk þess skal frambjóðandi hafa óflekkað mannorð og samkvæmt lögunum telst „enginn hafa óflekkað mannorð sem hlotið hefur dóm fyrir refsivert brot og refsing er óskilorðsbundið fangelsi, frá þeim degi þegar dómur er upp kveðinn og þar til afplánun er að fullu lokið.“ 

Kosningaréttur

Kosningarétt í prófkjöri hafa þau sem skráð eru í félag Pírata í Reykjavík 10 dögum áður en kosning hefst.  

Framboðsfrestur

Framboðsfrestur er til miðnættis 14. febrúar 2026. 

Afturköllun framboðs

Frambjóðandi getur dregið framboð sitt til baka fram til miðnættis 25. febrúar eða einum degi áður en opnað er fyrir kosningu. Tilkynna skal afturköllun framboðs með tölvupósti á: profkjor26@piratar.is

Reglur um röðun frambjóðenda

Framboðslistum verður raðað samkvæmt úrslitum forgangskosningar með Schulze aðferð eftir kosningu í kosningakerfi Pírata. Frambjóðandi getur valið að taka lægra sæti á lista og færast þá aðrir frambjóðendur ofar á lista með einfaldri færslu.

Hafni frambjóðandi sæti eða er ófær um að taka því fellur viðkomandi brott af lista og færast aðrir frambjóðendur ofar á lista með einfaldri færslu. 

Ef frambjóðandi er ekki kjörgengur er heimilt að víkja viðkomandi af lista. Kjörstjórn Pírata í Reykjavík raðar í þau sæti ekki raðast í að loknu prófkjöri með inngildingu og jafnrétti að leiðarljósi. Kjörstjórn er heimilt að bæta öðrum sem ekki voru í prófkjöri á listann með samþykki þeirra sjálfra og í samráði við stjórn Pírata í Reykjavík. 

Úrlausn ágreinings

Ef upp rís ágreiningur um prófkjörsreglur, kjörgengi frambjóðenda eða framkvæmd prófkjörs ber að vísa því til úrskurðarnefndar.

Ágreiningur getur varðað kjörgengi frambjóðenda, kosningarétt einstaklinga, framkvæmd prófkjörs, niðurstöðu prófkjörs og brot á reglum eða siðareglum. 

Frambjóðendur eða félagsfólk með kosningarétt í prófkjörinu geta lagt fram kæru til úrskurðarnefndar.

Kæra skal vera skrifleg og rökstudd. Frestur til að leggja fram kæru er tveimur sólarhringum eftir að prófkjöri lýkur. 

Úrskurðarnefnd getur, með samþykki aðila, leitast við að miðla málum. Náist ekki sátt tekur nefndin málið til úrlausnar og kveður upp skriflega niðurstöðu, sem felur í sér frávísun, staðfestingu eða fyrirmæli til kjörstjórnar um leiðréttingu. 

Í úrskurðarnefnd sitja Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Lilja Sif og Kristján Gísli. Ef upp rís ágreiningur ber að senda tölvupóst á urskurdarnefnd@piratar.is

  

Tilkynning á framboði

Frambjóðandi skal tilkynna framboð sitt með því að senda tölvupóst á profkjor26@piratar.is. Kjörstjórn Pírata tekur við framboðum. Persónuupplýsingar sem sendar eru verða notaðar til kynningar á frambjóðendum og til upplýsinga fyrir kjörstjórn Pírata í Reykjavík. 

Upplýsingar verða birtar opinberlega, að undanskilinni kennitölu, lögheimili, símanúmeri og netfangi. Í tilkynningu um framboð þarf eftirfarandi að koma fram: 

  • Frambjóðandi skal gera grein fyrir kjörgengi skv. 6. gr. sbr. 4. gr. kosningalaga nr. 112/2021

  • Fullt nafn 

  • Kennitala 

  • Staða, starfsheiti eða lífsköllun

  • Lögheimili

  • Símanúmer og netfang - verður ekki birt opinberlega

  • Ljósmynd sem má birta almenningi.

  • Stuttur kynningartexti sem verður birtur á piratar.is 

Vakin er athygli á því að dagana 15.-17. febrúar verður frambjóðendum boðið að koma í myndatöku, myndbandsupptöku og fá aðstoð við kynningartexta. Kynningarefni frambjóðenda verður birt á piratar.is, samfélagsmiðlum flokksins og svo á síðu kosningakerfis Pírata x.piratar.is. Frambjóðendur eru hvött til að nýta það efni til kynningar á sjálfum sér.

Með tilkynningu um framboð samþykkir frambjóðandi að hafa kynnt sér prófkjörsreglur og siðareglur og samþykkir að fara eftir þeim.

Skyldur þeirra sem taka sæti á lista:

Frambjóðandi samþykkir með undirskrift endanlegt sæti á lista og gefur einnig samþykki fyrir umboðsmönnum listans. Þetta skal eigi gert síðar en fjórum dögum áður en frestur til að skila framboði rennur út. Framboðsfrestur rennur út 10. apríl. Ef undirskrift berst ekki tímanlega er heimilt að fella frambjóðanda af lista.

Frambjóðendur eru hvött til að leggja sitt af mörkum til að safna meðmælum fyrir lista Pírata fyrir kosningarnar. Gert er ráð fyrir að hver frambjóðandi skili 10 meðmælum. 

Siðareglur

  1. Frambjóðendur í prófkjöri sýna öðrum frambjóðendum kurteisi og virðingu og koma fram af háttvísi, bæði í ræðu og riti.

  2. Frambjóðendur gera grein fyrir öllum þeim hagsmunum sem gætu skipt máli við framboðið. 

  3. Frambjóðandi gerir sér grein fyrir því að lífshlaupið gæti lent undir smásjá með þeim hætti að fortíð sé dregin upp í þeim tilgangi að rýra einstaklinginn og þar með framboðið. Frambjóðendur gera sér grein fyrir að fortíð þeirra og lífshlaup gætu sætt gagnrýni. Umræður geta jafnvel skapast í þeim tilgangi að rýra einstaklinginn og þar með framboð Pírata í heild. 

  4. Frambjóðendur koma heiðarlega fram, eru sannsögul og málefnaleg.

  5. Frambjóðendur gæta þess að sýna auðmýkt gagnvart ábyrgð sinni og valdi sem frambjóðendur Pírata.

  6. Til að gæta jafnræðis eru frambjóðendur hvattir til að gæta hófs í nýtingu fjármagns í kynningarefni á sjálfum sér. Miðað er við að hver frambjóðandi nýti ekki meira en 50.000 krónur í sínu framboði og ber að gera grein fyrir nýtingu fjármuna eftir að kosningu lýkur. Dæmi um kynningar á eigin framboði eru viðburðarhald og kostaðar auglýsingar á samfélagsmiðlum.

  7. Stjórn Pírata í Reykjavík mun tryggja að jafnræði frambjóðenda sé gætt með því að bjóða upp á kynningarsíðu á piratar.is, halda kynningarfundi og aðra viðburði á meðan kosningar eru opnar svo að frambjóðendur fái sem flest tækifæri til að kynna sig fyrir kjósendum. Sjá hér að ofan um aðstoð sem boðið verður upp á.

Gott að hafa í huga áður en þú býður þig fram

Frambjóðendur eru eindregið hvött til að bjóða sig aðeins fram ef þau hafa fullan hug á að taka sæti á lista, jafnvel neðar en þau hefðu óskað sér.

Frambjóðendur eru hvött til þess að taka fram eftir hvaða sæti þau sækjast. Þetta einfaldar kjósendum að raða á listann eftir óskum frambjóðenda. 

Til að draga úr endurútreikningum er mælst til þess að frambjóðendur tilkynni fyrirfram þegar framboð er tilkynnt á profkjor26@piratar.is:

Hámarkssæti sem frambjóðandi vill þiggja og lækka sig í ef viðkomandi lendir ofar á lista.

Lægsta sæti sem frambjóðandi myndi taka. 

Að lokum:

Að öllu jöfnu verður gert ráð fyrir að frambjóðandi vilji taka efsta mögulega sæti miðað við niðurstöðu prófkjörs.

Frambjóðendur eru hvött til að svara eftirfarandi spurningum og senda ásamt kynningartexta (200 orð) á profkjor26@piratar.is. Svörin verða birt á kynningarsíðu frambjóðenda á piratar.is 

  1. Hvað hvatti þig til þess að bjóða þig fram fyrir Pírata?

  2. Hverjir eru þínir helstu kostir fyrir hlutverk borgarstjórnarfulltrúa Pírata?

  3. Hver er þín framtíðarsýn fyrir Reykjavíkurborg og hvaða áherslur brenna sérstaklega á þér?

  4. Skemmtileg staðreynd um þig eða annað sem gæti vakið áhuga fólks á framboði þínu?

Birt með fyrirvara um villur og breytingar.

Píratakveðjur,
Stjórn Pírata í Reykjavík
reykjavik@piratar.is