Þrír þingmenn Pírata munu leggja land undir fót næstu helgi og bjóða Austfirðingum í kaffi og „meððí“ til að ræða atvinnuuppbyggingu og samgöngur á svæðinu laugardaginn 12. október á Salt - café & bistro á Egilsstöðum klukkan 13 .
Stjórnvöld hafa ekki staðið sig sem skyldi í að efla atvinnusköpun á Austurlandi og telja Píratar að margt megi betur fara. Auka þarf atvinnutækifæri á forsendum fólksins á svæðinu, sem og hafa samráð varðandi samgöngumál. Stjórnvöld ættu að mati Pírata að efla nýsköpun og fjölbreytt og umhverfisvæn atvinnutækifæri í byggðarlögum sem eiga á brattann að sækja – og tryggja greiðari, öruggari og hagkvæmari samgöngur.
Öll eru hjartanlega velkomnir og hvetjum við fólk til að eiga samtal við þingmenn um þessi mikilvægu málefni sem og önnur