Ályktun vegna notkunar lögreglu á rafbyssu
EN below
Formaður Pírata lýsir yfir áhyggjum vegna þess atviks sem kom upp í tengslum við notkun lögreglunnar á rafbyssu samkvæmt fréttum þann 18. maí sl. Samkvæmt fréttum hafði einstaklingur í ójafnvægi hellt yfir sig bensíni og hótað að kveikja í sér. Þrátt fyrir að um sýnilega viðkvæmar aðstæður hafi verið að ræða ákvað lögreglan að beita rafbyssu gegn einstaklingi án þess að sú aðgerð hafi borið árangur.
Samkvæmt frásögnum af atvikinu kemur fram að lögreglan hafi ekki brugðist nægilega hratt við eftir að einstaklingurinn bar eld að sér. Vitni sem sem tók myndskeið af atvikinu segir að lögreglan hafi hótað sér handtöku yrði upptökunni ekki eytt.
Slík framganga vekur upp spurningar um valdbeitingu, ábyrgð og gagnsæi gagnvart störfum lögreglu. Lögreglu er ekki heimilt að hindra eða koma í veg fyrir myndatökur af störfum lögreglu á opinberum vettvangi en getur verið heimilt að meina upptöku ef hún veldur verulegri truflun á störfum lögreglu. Lögreglan hefur ekki heimilt til að þvinga einstaklinga til að eyða upptökum sem hafa þegar verið gerðar.
Notkun á rafbyssum á að byggja á meðalhófi, nauðsyn og skýrum verklagsreglum. Lögreglu er aðeins heimilt að beita valdi þegar brýn nauðsyn krefur og aldrei meira afli en aðstæður réttlæta. Þ
Formaður Pírata kallar eftir tafarlausri og óháðri rannsókn á atvikinu og aukins eftirlits með valdbeitingu lögreglu og skýrari ábyrgðar þegar alvarleg mistök eða brota kunna að hafa átt sér stað.
Samfélag sem krefst hlýðni af almenningi verður einnig að gera þá kröfu að handhafar valds sæti ábyrgð á eigin gjörðum.
Resolution regarding police use of taser guns
The chairman of the Pirate Party expresses concern over the incident that occurred in connection with the police's use of a taser gun, as reported in the news on May 18th. According to news reports, an unstable individual had poured gasoline on themselves and threatened to set themselves on fire. Despite the visibly sensitive circumstances, the police decided to use force, unsuccessfully, against the individual with a taser gun.
According to accounts of the incident, the police did not react quickly enough after the individual set themselves on fire. A witness who recorded a video of the incident states that the police threatened arrest if they did not delete the recording.
Such conduct raises questions about the use of force, accountability, and transparency in police work. The police are not permitted to obstruct or prevent the filming of police work in public spaces. However, they may be authorized to prohibit recording if it causes a significant disruption to police duties. The police are not authorized to force individuals to delete recordings that have already been made.
The use of tasers should be based on proportionality, necessity, and clear procedures. The police are only permitted to use force when absolutely necessary and never with more force than the circumstances justify.
The chairman of the Pirate Party calls for an immediate and independent investigation into the incident, increased oversight of police use of force, and clear and transparent process and accountability when serious mistakes or violations are under investigation.
A society that demands obedience from its public must also demand that those in power are held accountable for their actions.

