Oddur Björn Jónsson

7. sæti lista Pírata í Reykjavík 2026.

A man with a beard and mustache smiling, wearing a striped blazer over a pink shirt, standing with arms crossed against a plain gray background.

Oddur starfar sem stuðningsfulltrúi á sambýli í Reykjavík, sem þýðir að hann kemst í tæri við velferðarkerfi borgarinnar á hverjum degi og sér hvenær það virkar og hvenær ekki. Hann hefur verið virkur í grasrótarstarfi um árabil en tekur nú af krafti þátt í starfi Pírata, því hann telur að það dugi ekki lengur til að gera smávægilegar kerfisbreytingar og að spartla í sprungurnar. Á tímum rísandi óvildar, sérstaklega í garð viðkvæmra hópa, vill Oddur að Reykjavík starfi með samhygð að leiðarljósi, í krafti samstöðu íbúanna og með mannréttindi fyrir öll í fyrirrúmi.