Lenya Rún
Taha Karim

Varaþingmaður - Reykjavík norður

Lenya Rún var yngsti þingmaður sögunnar í góðar níu klukkustundir þann 26. september 2021, þar til endurtalning í Norðvesturkjördæmi snéri lýðræðinu á hvolf. Hún hefur þó verið varaþingmaður Pírata frá árinu 2021.

Lenya Rún leggur áherslu á skynsamlega hagnýtingu náttúruauðlinda í þágu orkuvinnslu, jöfn tækifæri og réttindi fyrir alla hópa samfélagsins, aðkomu almennings að ákvarðanatöku stjórnmálamanna og að gagnsæ, heiðarleg og lýðræðisleg stjórnmál hljóti endurkomu í íslensk stjórnmál.

Hlutverk

  • Varaþingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður

  • Þingseta: desember 2021, febrúar 2022, mars 2022, mars–apríl 2022, maí–júní 2022, nóvember–desember 2022, febrúar 2023, mars–apríl 2023, september–október 2023, desember 2023 og júní 2024


Menntun

  • Stúdentspróf MS

  • BA-próf í lögfræði HÍ, 2022.

  • Meistarapróf í lögfræði HÍ, 2024.

Starfsferill

  • Varaþingmaður

  • Landsvirkjun, 2022-2024.

  • Aðstoðarkennari í lagadeild HÍ, ágúst 2023 - des 2023.

  • EFTA dómstóllinn, janúar 2024 - apríl 2024.

  • wpd Ísland, 2024 -

Tenglar