Jökull Leuschner Veigarsson
8. sæti lista Pírata í Reykjavík 2026.
Jökull ólst upp á landsbyggðinni áður en hann settist að í Reykjavík. Sá uppruni mótar það hugarfar sem hann tekur með sér inn í borgarpólitíkina. Auk þess að vera jöklaleiðsögumaður og frumkvöðull í ferðaþjónustu er hann rútubílstjóri og þekkir því stöðu gatnakerfis og innviða borgarinnar af eigin reynslu.
Jökull kemur inn með lausnamiðaða nálgun og mikinn áhuga á að koma Reykjavík í fremstu röð í umhverfismálum og samgöngum. Hann rekur tvö fyrirtæki í ferðaþjónustu, ásamt eiginkonu sinni, og leggur því áherslu á að skapa vettvang fyrir íslensk fjölskyldufyrirtæki sem hafa átt á brattann að sækja vegna ágengni stórfyrirtækja í geiranum.

