Tilbage til Alle begivenheder

Páskabingó Pírata

Það var um tíma ólöglegt að skemmta sér á föstudaginn langa
Píratar á Alþingi börðust ötullega fyrir sjálfsögðu afnámi banns við skemmtanahaldi á helgidögum og njótum við nú góðs af því

Til að fagna sjálfsögðu frelsi fólks á helgidögum þjóðkirkjunnar halda Píratar í Reykjavík sitt árlega Páskabingó laugardaginn 30. mars kl 14:00 - 16:00 í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43.

Veglegir vinningar verða í boði en þess fyrir utan fara öll börn að sjálfsögðu heim með lítið páskaegg

Eitt bingóspjald á mann í boði Pírata en fyrir þau allra keppnishörðustu verður hægt að kaupa aukaleg bingóspjöld á kr. 500,-./stk.

Léttar kaffiveitingar verða í boði

Öll velkomin!

Forrige
Forrige
23. marts

Pírataþing

Næste
Næste
6. april

Húsnæðisþing