Pírataþing II

lau10aprHeilsdagsviðburður(Heilsdagsviðburður: laugardagur) Pírataþing II

Hvenær

Heilsdagsviðburður (Laugardagur)

Netviðburður

Viðburði er lokið!

Upplýsingar

Nú er komið að hinu síðara Pírataþingi, sem mun leiða okkur nær endanlegri kosningastefnu Pírata fyrir Alþingiskosningar 25. september 2021. Pírataþing fer fram á netinu og fyrirkomulagið eftirfarandi:

Laugard. 10 apríl kl 12-18
GRASRÓT OG FRAMBJÓÐENDUR
Allir Píratar koma saman og ræða tillögur frá málefnahópunum tíú og geta í kjölfarið lagt fram skriflegar breytingatillögur ásamt rökstuðningi. Stefnu- og málefnanefnd mun vinna úr breytingatillögunum, sem mega ekki vera í efnislegu ósamræmi við samþykktar stefnur.

Tilgangur þessa hluta þingsins er að gefa öllum aðkomu og rödd í umræðu um öll málefni, þó þau hafi ekki haft tök á að taka þátt í störfum málefnahópanna. Á þessu stigi verður hins vegar of seint að gera efnislegar breytingatillögur, eða nýjar tillögur, þar sem sú vinna mun hafa farið fram í málefnahópunum og á spjall.piratar.is í aðdraganda samþykktar stefnuályktana, þar sem það á við. Engar ákvarðanir verða teknar en allri umræðu og tillögum vísað til SMN til frekari vinnslu ásamt frambjóðendum.

Slóðin á þingið er: https://us02web.zoom.us/j/87341682117 og Meeting ID: 869 8042 0041

Sunnudagur 11. apríl, kl. 12-16
FRAMBJÓÐENDUR EINGÖNGU
Frambjóðendur, (efstu fimm) í öllum kjördæmum, koma saman og ræða stefnumálin með tvær spurningar í huga:
1) Hvers vegna ættum við að leggja áherslu á þetta málefni í kosningum
2) Hvernig úr þessu komi í drög að málefnalegri kosningastrategíu og forgangsröðun málefna sem Stefnu-og málefnanefnd mun síðan, í samstarfi við frambjóðendur, vinna endanlega kosningastefnuskrá út frá.