Kosningar 22: Velferðarmál III

fim11nóv20:00fim22:0020:00 - 22:00 Kosningar 22: Velferðarmál IIIStefnumótunarfundur um velferðarmál

Netviðburður

Viðburði er lokið!

Upplýsingar

Velkomin á vinnufund um velferðarstefnu!

Nú er komið að fundi númer þrjú í þessari stefnumótunarlotu um velferðarmál sem samanstendur af fjórum fundum yfir tvær vikur.

Fundurinn fer fram í fjarfundi að þessu sinni vegna ástandsins í samfélaginu, hér er slóðin: https://fundir.piratar.is/stefnumotunpirata

Stefnumótunarfundarplan fyrir velferðarstefnu er að funda fimmtudag 4. nóvember, mánudaginn 8. nóvember, fimmtudaginn 11. nóvember og hafa lokaúrvinnslu mánudaginn 15. nóvember áður en stefnan er send í opið umsagnarferli.

Við viljum hvetja sem flest til að taka þátt í þessari vinnu. Fínn undirbúningur er að fara yfir samþykktar stefnur frá því fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018.


Hafir þú spurningar eða athugasemdir geturðu sent töluvpóst á stefnunefnd@piratar.is



Almennt um vinnuna:

Staðið hefur yfir samtal um hvernig standa beri að stefnumótun fyrir komandi kjörtímabil í sveitarstjórn. Út frá þeim samtölum hefur verið gerð áætlun með tímalínu fyrir stefnumótun og taka félögin á hverjum stað þátt sem vilja, að hluta eða í heild. Til dæmis er hægt að vinna ákveðinn grunn í sameiningu en staðfæra í kjölfarið eins og við á. Það er algjörlega á forræði einstakra félaga að ákveða hvort og hvernig er tekið þátt í þessu ferli en hér með er boðið upp á þetta ferli til að styðja við vinnuna.

Ertu með góða hugmynd fyrir stefnumótun? Taktu þátt með því að mæta á fundi eða sentu inn þína hugmynd í hugmyndakassann hér að neðan.Hægt er að að skrá sig á tengiliðalista fyrir málaflokka og fá sendar upplýsingar og áminningar um stefnumótunarfundarhöld þeim tengdum og senda inn hugmyndir í hugmyndakassann hér: https://forms.gle/xG8jL7hsEKTTuuip7