janúar | 2022
Hvenær
(Miðvikudagur) 20:00 - 22:00

Netviðburður
RUN
Viðburði er lokið!
Upplýsingar
Velkomin á vinnufund um skipulags- og samgöngustefnu! Þá er komið að næsta stefnumótunarfundi okkar um skipulags- og samgöngumál fyrir sveitarstjórnarkosningarnar en ákveðinn grunnur var unninn
Upplýsingar
Velkomin á vinnufund um skipulags- og samgöngustefnu!
Þá er komið að næsta stefnumótunarfundi okkar um skipulags- og samgöngumál fyrir sveitarstjórnarkosningarnar en ákveðinn grunnur var unninn í vinnulotu á stefnumótunarfundum fyrir jól.
Fundurinn fer fram miðvikudagskvöldið 26. janúar, klukkan 20 og verður í fjarfundi á https://fundir.piratar.is/stefnumotunpirata
Við hvetjum sem flest til að taka þátt í þessari vinnu.
Hafir þú spurningar eða vangaveltur geturðu haft samband við stefnunefnd@piratar.is.
Hægt er að skoða núgildandi stefnur Pírata í Reykjavík í skipulags- og samgöngumálum hér (litakóðaðar eftir stöðu verkefna): https://docs.google.com/document/d/1lb4hq4wKOJ7cApI0wrbybwEunsj5aERKe07TdUhMS-g/
Hér er skjalið sem við erum byrjuð að vinna:
https://docs.google.com/document/d/1BjVK1Xr6ftBRKj1IeqGmK-XGS6_E1DdRIR6JMiu-Zec/
Við hlökkum til að sjá ykkur!
================
Almennt um vinnuna:
Stefnumótun fyrir sveitarstjórnarkosningar hefur verið í bígerð síðan fyrir jól í vinnulotum á stefnumótunarfundum að jafnaði tvisvar í viku.
Hingað til hafa fyrstu drög verið kláruð að velferðarstefnu og barnastefnu sem eru nú í umsagnarferli á spjall.piratar.is. Í kjölfarið verða umsagnir teknar fyrir og stefnur unnar áfram áður en þær fara í samþykktarferli.
Unnið er að ákveðnum stefnugrunni í sameiningu sem þau svæðisfélög geta nýtt sér sem vilja, sem hægt er að staðfæra í kjölfarið eins og við á. Það er algjörlega á forræði einstakra félaga að ákveða hvort og hvernig er tekið þátt í þessu ferli en hér með er boðið upp á þetta ferli til að styðja við vinnuna.
Ertu með góða hugmynd fyrir stefnumótun? Taktu þátt með því að mæta á fundi eða sentu inn þína hugmynd í hugmyndakassann hér að neðan.
Hægt er að að skrá sig á tengiliðalista fyrir málaflokka og fá sendar upplýsingar og áminningar um stefnumótunarfundarhöld þeim tengdum og senda inn hugmyndir í hugmyndakassann hér: https://forms.gle/xG8jL7hsEKTTuuip7