Kosningar 22: Stefnumótun

fim20jan18:00fim19:3018:00 - 19:30 Kosningar 22: Stefnumótun Stefnumótun fyrir umhverfis, loftslags og dýrastefnuFundurinn byrjar kl:18 en ekki kl:20 (útaf handboltanum).

Netviðburður

Viðburði er lokið!

Upplýsingar

Kæru Píratar.

Þá höldum við áfram með stefnumótunarfundina fyrir umhverfis-, loftslags- og dýrastefnu Pírata fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022, er nú komið að þriðja fundinum okkar í þessari röð.

Fundarplanið fyrir þessa stefnu er að funda dagana 13., 17. og 20. janúar, og hafa lokaúrvinnslu mánudaginn 24. janúar áður en stefnan er send í opið umsagnarferli.

Næsti fundur er því fimmtudagurinn 20. janúar kl. 20-22, í fjarfundi að sjálfsögðu.

Hér er hlekkur á fundinn - https://fundir.piratar.is/stefnumotunpirata

Dagsetningar fyrir fundi verða settar í dagatalið á Piratar.is auk þess sem útbúnir verða Facebook-viðburðir. Sendar verða einnig út áminningar á þau sem óska þess, sjá skráningu á tengiliðalista fyrir neðan.

Ertu með góða hugmynd fyrir stefnumótun? Taktu þátt með því að mæta á fundi eða sendu inn þína hugmynd í hugmyndakassann hér að neðan.

Hægt er að að skrá sig á tengiliðalista fyrir málaflokka og fá sendar upplýsingar og áminningar um stefnumótunarfundarhöld þeim tengdum og senda inn hugmyndir í hugmyndakassann hér: https://forms.gle/xG8jL7hsEKTTuuip7

Við viljum hvetja sem flest til að taka þátt í þessari vinnu. Fínn undirbúningur er að fara yfir samþykktar stefnur frá því fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018. En þær má finna hér:

Umhverfisstefna: https://x.piratar.is/polity/102/issue/388/

Dýravelferð: https://x.piratar.is/polity/102/issue/371/

Dýraþjónusta Reykjavíkur: https://x.piratar.is/polity/102/issue/370/

Hafir þú spurningar eða athugasemdir geturðu haft samband við Pétur Óla, formann stefnu- og málefnanefndar Pírata, í síma 788 5874 eða með því að senda töluvpóst á stefnunefnd@piratar.is

Aðildarfélag

Píratar

546-2000 Síðumúli 23, 108 Reykjavík

Learn More