Kosningar 22: Kickoff fyrir velferðarstefnu

fim04nóv20:00fim22:0020:00 - 22:00 Kosningar 22: Kickoff fyrir velferðarstefnu

Hvenær

(Fimmtudagur) 20:00 - 22:00

Netviðburður

Viðburði er lokið!

Upplýsingar

Fyrsti fundur í stefnumótun vegna sveitarstjórnarkosninga sem einnig er upphafsfundur fyrstu lotu. Fundurinn fer fram á skrifstofu Pírata, að Síðumúla 23, og í fjarfundi.

Næstu tvær vikur verður unnið að velferðarstefnu (velferðarmál, öldrunarmál, málefni fatlaðs fólks og skaðaminnkunarmál).

Fundurinn verður tvískiptur. Frá kl. 20-21 er opinn viðburður með sérfræðingum í pallborði sem þekkja vel til þessara málaflokka. Eftir hlé verður yfirferð yfir stöðuna í núverandi stefnum.

Pallborðinu verður streymt á www.piratar.tv

Fjarfundur er í boði fyrir seinni hluta fundarins og er slóðin: https://fundir.piratar.is/stefnumotunpirata

Í pallborði verða:

  • - Rúnar Björn Herrera
  • - Svala Jóhannesdóttir
  • - Bergþór Heimir Sóleyjarson Njarðvík
  • - Sigrún Huld Þorgrímsdóttir

Stefnumótunarfundarplan fyrir velferðarstefnu er að funda fimmtudag 4. nóvember, mánudaginn 8. nóvember, fimmtudaginn 11. nóvember og hafa lokaúrvinnslu mánudaginn 15. nóvember áður en stefnan er send í opið umsagnarferli.

Við viljum hvetja sem flest til að taka þátt í þessari vinnu. Fínn undirbúningur er að fara yfir samþykktar stefnur frá því fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018.

Hafir þú spurningar eða athugasemdir geturðu haft samband við Evu Pandoru, formann stefnu- og málefnanefndar Pírata, í síma 865-6184 eða með því að senda töluvpóst á stefnunefnd@piratar.is.

================

Almennt um vinnuna:

Staðið hefur yfir samtal milli grasrótar, stefnu- og málefnanefndar (SMN), sveitarstjórnarfulltrúa og nokkurra svæðisfélaga um hvernig standa beri að stefnumótun fyrir komandi kjörtímabil í sveitarstjórn. Útfrá þeim samtölum hefur SMN gert áætlun með tímalínu fyrir stefnumótun og taka félögin á hverjum stað þátt sem vilja, að hluta eða í heild. Til dæmis er hægt að vinna ákveðinn grunn í sameiningu en staðfæra í kjölfarið eins og við á.Ertu með góða hugmynd fyrir stefnumótun?

Taktu þátt með því að mæta á fundi eða sentu inn þína hugmynd í hugmyndakassann hér að neðan.


Hægt er að að skrá sig á tengiliðalista fyrir málaflokka og fá sendar upplýsingar og áminningar um stefnumótunarfundarhöld þeim tengdum og senda inn hugmyndir í hugmyndakassann hér: https://forms.gle/xG8jL7hsEKTTuuip7

Aðildarfélag

Píratar

546-2000 Síðumúli 23, 108 Reykjavík

Learn More