KOSNINGAR 22: Kickoff fyrir skipulags- og samgöngustefnu

fim18nóv20:00fim22:0020:00 - 22:00 KOSNINGAR 22: Kickoff fyrir skipulags- og samgöngustefnu

Hvenær

(Fimmtudagur) 20:00 - 22:00

Netviðburður

Viðburði er lokið!

Upplýsingar

Velkomin á Kickoff-fund um skipulags- og samgöngumál!Nú er komið að stefnumótunarlotu númer tvö sem verður um skipulags- og samgöngumál þar sem sérfræðingar mættu til leiks og deila af visku sinni. Lotan samanstendur af fjórum fundum yfir tvær vikur.

Fundurinn verður tvískiptur. Frá kl. 20-21 er opinn viðburður með sérfræðingum í pallborði sem þekkja vel til þessara málaflokka.Í pallborðinu að þessu sinni eru sérfræðingarnir:

  • Edda Ívarsdóttir
  • Páll Líndal
  • Jón Kjartan Ágústsson

Eftir hlé verður yfirferð yfir stöðuna í núverandi stefnum.Fundurinn fer fram í fjarfundi að þessu sinni vegna ástandsins í samfélaginu en verður einnig streymt á netinu.

Pallborðinu verður streymt á https://piratar.tv

Fjarfundur er í boði fyrir seinni hluta fundarins og er slóðin: https://fundir.piratar.is/stefnumotunpirata


========================

Almennt um vinnuna:

Staðið hefur yfir samtal um hvernig standa beri að stefnumótun fyrir komandi kjörtímabil í sveitarstjórn. Út frá þeim samtölum hefur verið gerð áætlun með tímalínu fyrir stefnumótun og taka félögin á hverjum stað þátt sem vilja, að hluta eða í heild. Til dæmis er hægt að vinna ákveðinn grunn í sameiningu en staðfæra í kjölfarið eins og við á. Það er algjörlega á forræði einstakra félaga að ákveða hvort og hvernig er tekið þátt í þessu ferli en hér með er boðið upp á þetta ferli til að styðja við vinnuna.

Ertu með góða hugmynd fyrir stefnumótun? Taktu þátt með því að mæta á fundi eða sentu inn þína hugmynd í hugmyndakassann hér að neðan.

Hægt er að að skrá sig á tengiliðalista fyrir málaflokka og fá sendar upplýsingar og áminningar um stefnumótunarfundarhöld þeim tengdum og senda inn hugmyndir í hugmyndakassann hér: https://forms.gle/xG8jL7hsEKTTuuip7

Aðildarfélag

Píratar

546-2000 Síðumúli 23, 108 Reykjavík

Learn More