Borgarbylting: Þjónusta fyrir fólk frekar en kerfið

lau20mar11:00lau12:1511:00 - 12:15 Borgarbylting: Þjónusta fyrir fólk frekar en kerfiðStafræna þjónustuborgin Reykjavík

Hvenær

(Laugardagur) 11:00 - 12:15

Netviðburður

Viðburði er lokið!

Upplýsingar

Reykjavíkurborg hefur blásið til sóknar með Græna planinu og nútímavæðingu borgarinnar á þremur árum í stað tíu með tíu milljörðum í stað þriggja.

Hvernig beitir borgin aðferðafræði þjónustuhönnunar við hönnun og þróun á stafrænum notendavænum þjónustulausnum fyrir borgarbúa? Hvernig er stutt við gagnadrifna ákvörðunartöku innan borgarinnar og hvernig er aukið virði skapað úr gögnum til að auðga þjónustuupplifun borgarbúa?

Hvað hefur verið gert og hvert stefnum við þegar kemur að þjónustu á forsendum fólksins en ekki kerfisins, gögnum og gagnsæi?

Hvernig líta hugsjónir Pírata út þegar þær verða að veruleika?

Til að fjalla um stafrænu þjónustuborgina Reykjavík mæta til leiks:

  • - Óli Páll Geirsson, gagnastjóri Reykjavíkur
  • - Arna Ýr Sævarsdóttir, skrifstofustjóri þjónustu og umbreytinga hjá Reykjavíkurborg
  • - Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í borgarstjórn og formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkur

Eftir kynningar verður rými fyrir spurningar og umræður um málefnið.

Borgarbylting er fundarröð á vegum Pírata í Reykjavík með mánaðarlegum fundum um mikilvæg málefni er varða Reykjavík. Vaninn er að fá öfluga óháða sérfræðinga til leiks í bland við kjörna fulltrúa Pírata.

Eftir kynningar verður gefið rými fyrir spurningar og umræður um málefnið.

Aðildarfélag

Píratar í Reykjavík

PÍR aðildarfélag Pírata í Reykjavík.reykjavik@piratar.is

Learn More