Framboð í prófkjöri í Hafnarfirði


Samkvæmt ákvörðun stofnfundar Pírata í Hafnarfirði bjóða Píratar fram til sveitarstjórnar í Hafnarfirði í vor. Samkvæmt lögum félagsins skal raðað á framboðslistann með því að auglýsa eftir framboðum félagsmanna og halda svo netkosningu um listann.

Hér með tilkynnist því að opið er fyrir framboð og atkvæðagreiðsla mun fara fram meðal félagsmanna Pírata í Reykjavík í rafrænu kosningakerfi Pírata á netinu þann 5. mars – 13. mars næstkomandi. Framboðsfrestur rennur út þann 1. mars en þó er hægt að gera undantekningu á því með samþykki stjórnar Pírata í Hafnarfirði.

Áhugasamir frambjóðendur og kjósendur sem ekki eru félagar í Pírötum í Hafnarfirði nú þegar geta skráð sig í félagið með því að senda tölvupóst á skraning[at]piratar.is og taka fram að þeir vilji skrá sig í Pírata í Hafnarfirði (félagar í Pírötum í Hafnarfirði eru sjálfkrafa félagar í Pírötum en ekki öfugt) sem og gefa upp kennitölu og heimilisfang. Þetta er nauðsynlegt áður en fólk getur boðið sig fram eða kosið í framboðslistakosningunum, bæði lagalega og ekki síst upp á að fá aðgang að kosningunum í kosningakerfinu.

Þó skal tekið fram að samkvæmt lögum félagsins geta þeir félagar einir kosið í framboðslistakosningunum sem hafa verið skráðir í Pírata í 30 daga. Þetta þýðir að nýir Píratar þurfa að skrá sig sem fyrst til að ná að taka þátt í kosningunum. Frambjóðendur þurfa hins vegar einungis að vera félagar í Pírötum í Hafnarfirði þegar þeir tilkynna framboð formlega, sem og vera kjörgengir við sveitarstjórnarkosningar (samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna er hver sá kjörgengur í sveitarstjórn sem á kosningarrétt í sveitarfélaginu og hefur ekki verið sviptur lögræði) – og auðvitað láta vita fyrir 1. mars.

Tekið er við formlegum tilkynningum um framboð í tölvupóstfangið frambod[at]piratar.is. Frambjóðendur skulu gefa upp nafn, kennitölu og netfang að lágmarki en mælt er með því að þeir láti mynd af sér fylgja og svari eftirfarandi spurningum líka:

Hver ‘ert’ þú?

Af hverju ertu Pírati?

Ertu með einhverjar sértækar áherslur í bæjarmálum?

Hvaða sæti býður þú þig fram í (alveg opin spurning, má þess vegna vera ‘hvaða sæti sem er’)?

Tekið er við ábendingum og spurningum í tölvupóstfangið hafnarfjordur[at]piratar.is.

Fyrstu ár barnsins: fæðingarorlof, leikskóli og bilið þar á milli

Ljóst er að samfélagsgerð okkar gerir ekki nægilega vel ráð fyrir fyrstu fimm árunum...

Nýárskveðja

Kæru Píratar, Þá er árið 2022 á enda. Tíunda afmælisár Pírata. Píratar sem byrjuðu sem...

Hið fjöruga og fjölbreytta 2022

Nú er þetta langa og skrýtna ár senn á enda og tímabært að líta...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra....