Opið bréf til Mike Pence

Kæri Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna

Við bjóðum þig velkominn til okkar fallegu höfuðborgar. Reykjavík er allt í senn smábær og heimsborg. Vonandi verður heimsóknin þér að ánægju. Íslendingar eru gestrisin þjóð að eðlisfari og borgin okkar örugg og fjölskylduvæn. Bandaríkin og Ísland eru sögulegar vinaþjóðir. Við viljum alltaf taka vel á móti nánum vinum. Að þessu sinni er heimsóknin mikilvæg í átt að áframhaldandi vináttu. Íslendingar, líkt og aðrar vinaþjóðir Bandaríkjanna, hafa áhyggjur af því að bandarísk yfirvöld horfi nú af braut framfara og lýðræðis í gegnum samtal, viðskipti og opinn hug. Vonandi verður þessi heimsókn og ferðarlög þín til grannþjóða til þess að styrkja vinskap þjóðanna.

Samskipti Íslendinga og Bandaríkjanna eiga sér lengri sögu en ríkin sjálf. Þau hefjast með Leifi heppna í kringum 1000. Á 19. öld fluttu um 20% íslensku þjóðarinnar vestur til Bandaríkjanna og Kanada. 17. júní árið 1944 viðurkenndu Bandaríkin Ísland sem fullvalda ríki með heillaóskum Franklin D. Roosvelt, forseta og Cordell Hull, utanríkisáðherra. Hingað komu Apollo-farar og þjálfuðu fyrir tungllendinguna. Eldri kynslóðir ólust upp við „kanasjónvarp“ og bandarískar venjur og menningu. Hér voru lesin Andrésblöð á dönsku, heimsbókmenntirnar þýddar á íslensku en Roy Rogers og Bonanza mátti sjá í kanasjónvarpinu. Bandarísk áhrif eru Íslendingum hugmyndaauðgi eins og áhrifin frá Norrænum frændþjóðum okkar.

Líkt og aðrir bandamenn ykkar erum við Íslendingar því áhyggjufull yfir því að Hvíta hús ykkar Trump fjarlægist stöðugt gildi samvinnu, frelsis og ábyrgðar. Hættan er sú ef áfram heldur sem horfir að Bandaríkin missi ekki aðeins leiðandi stöðu sína heldur finni sig utanveltu, áhrifalítil og vinafá.

Auðvitað er það svo að ekkert ríki er fullkomin útgáfa af eigin metnaði. Hvorki Ísland né Bandaríkin geta státað sig af því að hafa náð metnaði sínum svo hafið sé yfir alla gagnrýni. Það er hins vegar áhyggjuefni þegar einn nánasti bandamaður þinn er farinn að tala beinlínis gegn þeim gildum sem við deildum áður. Hinseginfælin stjórnmál þín og Trump, stríðið gegn réttindum kvenna, barátta gegn líkn gagnvart börnum innflytjenda sem aðskilin eru frá foreldrum sínum og úrsögn Bandaríkjanna úr Parísarsamkomulaginu eru dæmi um afstöðu sem grafa undan góðum samskiptum Bandaríkjanna við Ísland og umheiminn.

Kæri Pence, vertu innilega velkominn til okkar fallegu borgar en upplifun þín af Reykjavík verður ekki heil ef enginn bendir þér á að réttindi hinsegin fólks hinsegin fólks er okkur tilefni til stolts en ekki yfirvofandi samfélagshruns. Njóttu borgarinnar okkar í öllum sínum hinseginleika. Fyrir hönd Reykjavíkur býð ég hinsegin fólk velkomið. Verði ferðin til Reykjavíkur þér innblástur til breytinga og samkenndar með hinsegin borgurum Bandaríkjanna og heimsins. Okkur skilst að þú munir heimsækja okkar sögufræða hús Höfða, sem er stolt okkar Reykvíkinga, á meðan heimsókn þinni stendur. Megir þú njóta þess friðaranda sem umlykur þetta hús, við vonum að sá verði þér jákvæður innblástur.

Við óskum engum þeirra örlaga að heimsæka Ísland og láta anda og sögu kvennabaráttunnar fram hjá sér fara. Verði Vigdís Finnbogadóttir, fyrsta lýðræðislega kjörin kvenkyns forseti heims þér að innblæstri ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrsta opinberlega samkynhneigða konan sem gegnir starfi forsætisráðherra á heimsvísu. Íslenskar konur og menn leita svo sannarlega innblásturs frá sterkum bandarískum konum og sögufrægu kvennahreyfingu.

Kæri Pence, Reykjavík er fjölskylduvæn borg þar sem börn njóta frelsis til að þroska og dafna. Vertu velkominn að njóta þess anda á meðan þú ert hér. Megi sú íhugun verða þess valdandi að þú og forseti Bandaríkjanna snúið frá þeirri vegferð að réttlæta fangelsun barna, aðskilnað frá foreldrum og vistun í aðstæðum sem ganga gegn hugmyndum okkar um mannúðlega meðferð allra.

Þú ert velkominn gestur á Íslandi og sú gestrisni stendur öllum bandarískum vinum okkar til boða. Vinskapur Íslendinga og Bandaríkjanna nær jafnt til kvenna og hinsegin fólks sem og innflytjenda. Sígíld bandarísk gildi frelsis og sanngirni til handa öllum eru okkur innblástur. Það yrð okkur mikil sorg ef bandarískir leiðtogar sjá sér hag í að berjast gegn slíkum gildum í orði og á borði.

Vera Íslands í Atlantshafsbandalaginu er ein stoða íslenskrar utanríkisstefnu. Aðild hins herlausa Íslands í hernaðarbandalagi er umdeild á Íslandi en pólitískt trygg. Bandaríkjamenn þurfa ekki að óttast áhrif andstæðinga veru Íslands í NATO. Íslenskur almenningur kærir sig þó lítið um að dragast inn í hernaðarkapphlaup stórveldanna vegna Norðurslóða. Við getum ekki annað en ráðlagt fulltrúum Íslands og Bandaríkjanna að stíga varlega til jarðar í þessum málum. Það er alls ekkert víst að sama pólitíska ró verði gagnvart því að Ísland dragist inn í hernaðarkapphlaup og er að finna gagnvart veru okkar í varnarbandalagi.

Aðdáun Íslendinga og umheimsins á Bandaríkjunum byggir á hrifningu en ekki hræðslu. Hernaðarstyrkur Bandaríkjanna er öllum augljós. Merkir leiðtogar þurfa ekki að spenna sífellt vöðvana. Stórveldið Bandaríkin á sínar tignarlegastu stundir þegar sest er niður með smærri vinum á jafningjagrundvelli. Þeir sem því gleyma eiga á hættu að vakna upp við vondan draum; vinalausir, einangraðir og áhrifalausir þrátt fyrir allan heimsins mátt.

Af virðingu og vinsemd

Dóra Björt Guðjónsdóttir og Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúar Pírata.

Birtist á vísi þann 4. september 2019

Kommentakerfi Pírata

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Rasismi á Íslandi

Rasismi er vandamál á Íslandi eins og annars staðar í veröldinni. Íslenska lögreglan er þar ekki undanskilin....

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...