Minna tuð, meiri aðgerðir

Tími fálætis í umhverfismálum er liðinn. Við þurfum að taka stór og stefnumótandi skref núna strax. Við höfum ekki tíma til að taka lítil skref sem trufla fáa en breyta litlu. Við höfum ekki tíma til að vera ,,dipló”. Sá tími er löngu liðinn. Við þurfum róttækni. Við þurfum hugrekki. Unga fólkið á vikulegum loftslagsmótmælum krefst róttækra aðgerða, enda snúast loftslagsmálin um jafnrétti milli kynslóða fyrst og fremst. Eldri kynslóðir eru búnar að menga hömlulaust á kostnað næstu kynslóða og ef við sveigjum ekki af þessari braut ekki seinna en núna verður það orðið of seint.

Segjum „bless“ við plástrana

Sumir kollegar mínir úr minnihluta borgarstjórnar láta eins og okkar aðgerðir í meirihlutanum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda séu hálfgert ofstæki. Þeir vilja eingöngu ráðast í aðgerðir sem eru í besta falli plástrar á sárin. Þeir standa vörð um frelsi einstaklingsins til að menga en vilja helst bara draga úr neikvæðum afleiðingum þeirrar mengunar. Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins sagði á nýlegum borgarstjórnarfundi um aðgerðir meirihlutans til að draga úr mengun: „Ég vil bara að við höldum okkur við hvað við getum gert án þess að segja fólki hvernig það á að lifa lífi sínu”. Ég er sammála því að fólk eigi að mestu að fá að vera í friði – svo lengi sem það brýtur ekki á frelsi annarra en það gerir mengun einmitt með víðtækum hætti. Þessi staðhæfing Kolbrúnar ber vott um algjöra firringu og engan skilning á umfangi vandans. Þetta segir hún þrátt fyrir að við Íslendingar losum mest magn koltvíoxíðs af öllum löndum Evrópu innan ESB- og EFTA-svæðisins (1).

Skoðum staðreyndir, ekki bull

Aðrir afneita vísindunum. Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins bókaði eftirfarandi á fundi Borgarráðs 6. mars þegar ákveðið var að ráðast í framkvæmdir við endurheimt votlendis í Úlfarsárdal: „Engar rannsóknir hafa sýnt fram á að endurheimt votlendis auki kolefnisbindingu”. Það er af og frá. Votlendi bindur koltvíoxíð og standa nágrannaþjóðir okkar í metnaðarfullum endurheimtingarverkefnum vegna þessa. Finnar hafa undanfarin ár endurheimt votlendi í stórum stíl til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með góðum árangri (2). Skotar hafa í sinni loftslagsáætlun fyrir 2018-2032 markmið um að endurheimta 50.000 hektara votlendis fyrir 2020 og 250.000 hektara fyrir 2030 (3). Við ætlum líka að endurheimta votlendi í Reykjavík því það virkar.

Eitt það mikilvægasta sem Reykjavíkurborg getur gert til að draga úr mengun er að efla notkun vistvænna ferðamáta og minnka notkun bíla. Bílar menga. En framleiðsla þeirra og flutningur til kaupanda menga líka. Gatnagerð er mengandi og það að spæna upp malbikinu er mengandi. En notkun vistvænna ferðamáta dregur líka úr sóun. Þegar við ferðumst milli búðarinnar og heimilis á vistvænan hátt þurfum við að forgangsraða betur við innkaupin sem minnkar sóun vegna þess að það er hreinlega takmarkað hversu mikið við getum flutt með okkur milli staða án bíls.

Tíminn er á þrotum

Að auka notkun vistvænna ferðamáta er þó langt frá því að vera það eina sem borgin er að gera. Nýbyggingar í borginni fara í gegnum umhverfismat þar sem lögð er áhersla á sjálfbær hverfi, verndun líffræðilegs fjölbreytileika og náttúrulegra vistkerfa og aukinn orkusparnað. Yfir 90% af allri uppbyggingu er innan núverandi byggðar, þannig takmörkum við fótspor okkar og styrkjum grundvöllinn fyrir vistvænum samgöngum og sjálfbærum hverfum. Við leggjum áherslu á að gróðursetja fleiri tré sem breyta koltvíoxíði í súrefni, við ætlum að draga úr myndun úrgangs, auka stuðning við verkefni sem stuðla að endurnotkun og endurvinnslu og auka framleiðslu vistvænna orkugjafa með nýrri gas- og jarðgerðarstöð þar sem loksins verður farið að flokka lífrænan úrgang heimilanna. Svo ekki sé minnst á áherslu okkar á nýsköpun og nýjar, snjallar og umhverfisvænar lausnir.

Við þurfum að taka róttæk skref til minnka losun gróðurhúsalofttegunda svo að næstu kynslóðir eigi séns. Við höfum örfá ár þangað til það er orðið of seint.  Til þess að þetta mega verða þurfum við öll að vinna saman, stjórnmálafólk og almenningur. Og við þurfum stjórnmálafólk sem byggir ákvarðanir sínar og skoðanir á staðreyndum.

Tíminn er að renna frá okkur. Eyðum honum ekki í tuð heldur aðgerðir.

Höfundur er forseti borgarstjórnar og borgarfulltrúi Pírata.

Greinin birtist á Vísi þann 3. mars 2019


Heimildir:

(1)   https://www.hagstofa.is/utgafur/frettasafn/umhverfi/losun-koltvisyrings-a-einstakling/
(2)   https://ec.europa.eu/environment/life/project/Projects/index.cfm?fuseaction=home.showFile&rep=file&fil=Boreal_Peatland_Best_Practices.pdf
(3)   https://www2.gov.scot/Resource/0053/00532096.pdf

Kommentakerfi Pírata

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...