
Eyþór Arnalds fær að heyra það frá Dóru Björt fyrir að reyna að afvegaleiða umræðuna um spillingu og mútur til kjörinna fulltrúa og hrökklast af fundi eftir þessa ræðu:
„Sumt fólk lætur draga sig á asnaeyrunum í að taka þátt í leikriti hákarla sem eru staðráðnir í að koma umbótum og baráttu gegn spillingu fyrir Kattarnef ehf. ..hér er verið að nota borgarbúa sem fallbyssufóður fyrir oddvita í vasa Samherja. Allt til þess að aldrei skapist sú menning að ræða spillingu og hagsmuni af neinni alvöru. Íbúalýðræði er fyrir íbúa og á að vera á forsendum íbúa, að beiðni íbúa. Stjórnmálamenn með allt að fela eiga ekki að komast upp með að nota það sem kökuskraut á misheppnaðan pólitískan bakstur leyndarhyggju og greiðasemi við vini með aflönduð veski og fjölmiðil sem fer um hann mjúkum höndum.” Dóra Björt, oddviti Pírata í Reykjavík.
Ný stjórnarskrá
„Ef Sjálfstæðisflokknum er svo umhugsað um lýðræðið legg ég til að hann byrji á því að virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá og veiti þjóðinni málskotsrétt og innleiði náttúruauðlindaákvæðið vinsæla þar sem kveðið er á um að þjóðin eigi auðlindirnar og eigi að fá greiddan fullan arð af þeirri auðlind. Það er löngu orðið tímabært, undanfarin vika hefur aldeilis leitt það í ljós.” Dóra Björt, oddviti Pírata í Reykjavík.