
Píratar.TV sýndi fimmta fund Pírata í Reykjavík í fundarröðinni Borgarbyltingin.
Reykjavíkurborg hefur blásið til sóknar með Græna planinu og nútímavæðingu borgarinnar á þremur árum í stað tíu með tíu milljörðum í stað þriggja.Hvernig beitir borgin aðferðafræði þjónustuhönnunar við hönnun og þróun á stafrænum notendavænum þjónustulausnum fyrir borgarbúa? Hvernig er stutt við gagnadrifna ákvörðunartöku innan borgarinnar og hvernig er aukið virði skapað úr gögnum til að auðga þjónustuupplifun borgarbúa?Hvað hefur verið gert og hvert stefnum við þegar kemur að þjónustu á forsendum fólksins en ekki kerfisins, gögnum og gagnsæi?Hvernig líta hugsjónir Pírata út þegar þær verða að veruleika?
Til að fjalla um stafrænu þjónustuborgina Reykjavík mæta til leiks:
- Óli Páll Geirsson, gagnastjóri Reykjavíkur
- Arna Ýr Sævarsdóttir, skrifstofustjóri þjónustu og umbreytinga hjá Reykjavíkurborg
- Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í borgarstjórn og formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkur