
Upptaka frá kynningarkvöldi frambjóðenda í prófkjöri Pírata í Kópavogi 2022. Myndbandið er kaflaskipt og geta áhorfendur smellt á tímalínu myndbandsins til þess að fara beint í eftirfarandi kafla:
- Kynningar hvers frambjóðanda – raðað eftir nöfnum frambjóðenda.
- Spurt og svarað (Q&A) en þar svara allir frambjóðendur sömu spurningunum – raðað eftir spurningum
- Lokaorð hvers frambjóðanda – raðað eftir nöfnum frambjóðenda
Fundarstjóri var Katla Hólm Þórhildardóttir og frambjóðendur sem kynntu sig þetta kvöld voru eftirfarandi:
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
- Árni Pétur Árnason
- Eva Sjöfn Helgadóttir
- Margrét Ásta Arnardóttir
- Indriði Ingi Stefánsson
- Kjartan Sveinn Guðmundsson
- Matthías Hjartarson
Hægt er að kynna sér öll framboðin nánar á x.piratar.is (athugið að þið þurfið að skrá ykkur inná kosningakerfið til þess að skoða framboðin).
Kosningar hófust laugardaginn 19. febrúar og lýkur kl:15.00 laugardaginn 26. febrúar. Nýtið ykkur rafræna kosningakerfi Pírata og kjósið ykkar fulltrúa í borginni.