Hvaða laun hafa hækkað?

Það hefur stundum verið sagt að það sé ekki hægt að bæði borða kökuna og eiga hana. Samtök atvinnurekenda bregðast gjarnan harkalega við þegar kemur að kjaraviðræðum og samtök launþega leggja fram sínar kröfur. Sérstaklega þegar kemur að lægstu launum og óskað er eftir leiðréttingu á þeim.

Á vef Hagstofu Íslands má skoða hvernig tekjur þjóðfélagshópa hafa þróast. Þar má skoða þróun og samanburð tekna, eigna, skulda og fleiri hagstærða milli tíunda. Þessar tölur eru unnar upp úr skattframtölum og því er um að ræða opinberlega skráð gögn. Þær tölur sem koma hér fram miðast við þá niðurstöðu sem ég fékk úr reiknivél Hagstofunnar. Hér skoða ég tímabilið frá aldamótum, eins langt og gögnin ná.

Lægsta tíundin nær ekki einu sinni að halda í verðbólguna

Sé tímabilið frá aldamótum skoðað er verðbólgan á því tímabili hækkun upp á 142%. Ef við skoðum atvinnutekjur lægstu tíundarinnar hafa þær á tímabilinu hækkað um 98%, töluvert minna. Ef við skoðum á móti þróun ráðstöfunartekna er staðan skárri eða hækkun upp á 113% sem nær þó ekki að halda í við verðbólgu. Sé litið til breytinga milli ára sést að lægsta tíundin sker sig nokkuð úr og lækkar gjarnan milli ára. Svo hefur tilfellið verið undanfarin ár og voru ráðstöfunartekjur hennar árið 2020 einungis 87% af því sem þær voru 2018. Á sama tíma hefur húsnæðisverð hækkað um 357%.

Eignir lægstu tíundanna í fasteignum dragast saman

Þar sem fasteignaverð hefur þróast með talsvert öðrum hætti en laun lægstu tíundanna þarf ekki að koma á óvart að húsnæðiseign lægri tíundanna er minni en hinna. Sú þróun er sláandi, lægstu þrjár tíundirnar mælast vart í eignum en bæta lítillega við sig að nafnvirði. Sé litið til verðbólgu (ekki þróunar fasteignaverðs) dragast eignir þriðju, fjórðu og fimmtu tíundarinnar áberandi saman, svo mjög að segja má að húsnæðiseign lægstu fimm tíundanna mælist vart á meðan hinar hærri hafa hækkað mikið. Sé litið til þróunar húsnæðisverðs kemur svo í ljós að eignir sjöttu tíundarinnar standa að mestu í stað en aukast svo eftir því sem tíundirnar hækka. Húsnæðiseign hæstu tíundarinnar hefur til dæmis hækkað um 88% umfram þróun húsnæðisverðs eða rúmlega áttfaldast að nafnvirði.

Hagur hæstu tíundarinnar vænkast mest

Það er nánast sama hvaða mælikvarði er skoðaður, hæsta tíundin hefur aukið við sig umfram aðrar og ekki er útlit fyrir að það breytist í bráð. Sennilega er munurinn mestur í fjármagnstekjum þar sem hæsta tíundin er nánast sú eina sem mælist. Heildareignir hennar aukast líka mest. Það er nánast sama hvar borið er niður, hæsta tíundin kemur best út. Frá 2015 hefur hún meira að segja skuldað minna en níunda tíundin og skuldar nú minna en sú áttunda. Hún borgar einnig minna í vexti af íbúðalánum en sjöunda, áttunda og níunda tíundin og svo hefur í raun verið frá 2011. Eðli málsins samkvæmt kemur hæsta tíundin best út úr slíkum samanburði sem hér um ræðir en það sem er áhyggjuefni er að hún bætir stöðu sína langt umfram aðrar tíundir.

Hvað myndi kosta að laga kjör lægstu tíundanna?

Við hljótum flest að vera sammála um að það gengur ekki að lægstu tíundirnar dragist aftur úr. Hér er í raun sama við hvaða mælikvarða miðað er, þróunin er engan veginn ásættanleg. Ef einhver hélt að það væri mjög dýrt að laga þetta, þá er það sorglega að ef hæsta tíundin hefði gefið eftir þriðjung hækkunar atvinnutekna sinna milli 2019 og 2020, þegar lægsta tíundin lækkaði um 17%, dygði það ekki bara til að leiðrétta skekkjuna milli ára heldur myndi það duga til að leiðrétta skekkjuna sem hefur verið að safnast upp frá aldamótum og svipað gildir um ráðstöfunartekjur.

Hvað getum við þá gert í þessu?

Það er í raun með ólíkindum að þegar við fréttum af kaupaukum og launakjörum stjórnenda fyrirtækja heyrist ekkert í þeim sem bregðast við af hörku þegar talið berst að launakjörum og launahækkunum almennings. Það er alveg ljóst að þróunin siglir í þá átt að á Íslandi fari þeim sífellt fækkandi sem njóti almennilegra lífskjara. Sú staða er þegar komin upp á ýmsum sviðum samfélagsins, eins og margir sem eru í húsnæðisleit finna nú fyrir. Þrátt fyrir að skoða þurfi almenn kjör allra landsmanna, er alveg ljóst að þörfin er brýnust hjá verst setta hópnum og þar verðum við að byrja.

Höfundur er varaþingmaður Pírata og á lista Pírata í kosningum til bæjarstjórnar Kópavogs.

Upprunaleg birtingvisir.is

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...