Upptaka frá fyrsta kynningarkvöldi frambjóðenda í prófkjöri Pírata í Reykjavík 2022. Myndbandið er kaflaskipt og geta áhorfendur smellt á tímalínu myndbandsins til þess að fara beint í eftirfarandi kafla:
- Kynningar hvers frambjóðanda – raðað eftir nöfnum frambjóðenda.
- Spurt og svarað (Q&A) en þar svara allir frambjóðendur sömu spurningunum – raðað eftir spurningum
- Lokaorð hvers frambjóðanda – raðað eftir nöfnum frambjóðenda
Fundarstjóri var Katla Hólm Þórhildardóttir og frambjóðendur sem kynntu sig þetta kvöld voru eftirfarandi:
- Alexandra Briem
- Rannveig Ernudóttir
- Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir
- Kjartan Jónsson
- Vignir Árnason
- Eyþór Árni Möller Árnason
- Kristinn Jón Ólafsson
- Magnús Norðdahl
- Oktavía Hrund Jónsdóttir (bréf lesið af fundarstjóra)
Halldór Emilíuson og Stefán Örvar Sigmundsson mættu ekki. Hægt er að kynna sér öll framboðin nánar á x.piratar.is (athugið að þið þurfið að skrá ykkur inná kosningakerfið til þess að skoða framboðin).
Kosningar hófust laugardaginn 19. febrúar og lýkur kl:15.00 laugardaginn 26. febrúar. Nýtið ykkur rafræna kosningakerfi Pírata og kjósið ykkar fulltrúa í borginni.
Kynningarkvöld nr.2 er hér