Borgararéttindi eru lögbundin réttindi einstaklinga. Sem dæmi um borgaraleg réttindi má nefna rétt til þess að efna til eða taka þátt í friðsamlegum mótmælum, kosningarétt, trúfrelsi, málfrelsi og prentfrelsi. Í grunnstefnu Pírata eru borgararéttindi mikilvægur þáttur og skal stefnt að varðveislu og útvíkkun slíkra réttinda. Píratar telja að borgararéttindi tilheyri einstaklingum, og að réttur hvers og eins sé jafn sterkur.