Vökvum nærandi rætur grænnar og rétt­látrar Pírata­­borgar

Reykjavík hefur á kjörtímabilinu tekið stór og mikilvæg skref fyrir tilstilli Pírata. Skref í átt að meira gagnsæi, eflingu lýðræðis og dreifingu valds, bættu eftirliti, að loftslagsmál móti alla ákvarðanatöku, í átt að aukinni mannréttinda- og dýravernd, skaðaminnkun og bættum lífsgæðum jaðarsettra hópa.

Við gerum það sem við segjum

Við höfum brugðist við þegar erfið mál koma upp frekar en að sópa þeim undir teppið og höfum nýtt þau til mikilvægra breytinga eins og í braggamálinu þegar öllu stjórnkerfi borgarinnar var umbylt. Eða sem viðbragð við myglumálum þegar umfangsmikill verkferill vegna raka og myglu var unninn með helstu sérfræðingum landsins og ráðist í allsherjarviðhaldsátak skólahúsnæðis með 25-30 milljörðum næstu ár. Eða þegar við keyrðum áfram vinnu við nýjar reglur um ráðningar æðstu embættismanna til að tryggja óháðar og gagnsæjar ráðningar sem viðbragð við gagnrýni við lok síðasta kjörtímabils. Við höfum sýnt að okkur er treystandi til góðra verka. Við gerum það sem við segjum, erum heiðarleg og réttsýn. Almannahagur er okkar eina leiðarljós.

Mótað borgina með handafari Pírata

Vöxtur okkar í kosningunum 2018 þar sem við náðum inn tveimur borgarfulltrúum hefur skipt sköpum. Þessi aukni kraftur hefur vegið þungt. Með gríðarmörgum baráttumálum Pírata í meirihlutasáttmála núverandi meirihluta höfum við sannarlega mótað borgina með handafari Pírata. Ég er spennt fyrir komandi kosningabaráttu og innilega stolt af því sem við höfum áorkað.

Bílaborgin á undanhaldi

Bílaborgin með sínu malbikaða munstri, mótuðu af áratugasögu þar sem allt hefur verið skipulagt á forsendum eins fararskjóta umfram alla aðra er loks á undanhaldi. Þétting byggðar og uppbygging Borgarlínu og innviða fyrir gangandi og hjólandi skapar rými fyrir alvöru valfrelsi um það að ganga, hjóla eða nýta almenningssamgöngur.

Skaðaminnkun

Skaðaminnkun var orð sem vart var að finna í skjölum borgarinnar fyrr en með ferskum blæ og nýrri rödd Pírata. Allt velferðarstarf er nú unnið út frá leiðarljósi skaðaminnkunar, umburðarlyndis og virðingar fyrir fjölbreytileikanum. Fjármagn til að grípa og styðja við heimilislaust fólk hefur verið tvöfaldað á þessu kjörtímabili, samhliða margföldun á skilyrðislausu húsnæði með Housing First hugmyndafræðinni. Nýtt heimili fyrir konur með geð- og fíknivanda hefur opnað, sem rúllaði beint úr stefnu Pírata inn í meirihlutasáttmála. Nú ætlum við að opna fyrsta neyslurýmið á Íslandi.

Nýsköpun og stafræn umbylting

Nýtt svið þjónustu og nýsköpunar sem leit dagsins ljós á kjörtímabilinu, innleiðing þjónustustefnu borgarinnar, sem mótuð var á ábyrgð Pírata, og síðast en ekki síst fordæmalaust 10 milljarða fjárfestingarátak í formi þreföldunar á fjármagni, eru flugfjaðrir hinnar stafrænu umbyltingar, sem nú hefur tekið flugið undir forystu Pírata. Á vængjunum svífur baráttan gegn spillingu. Tæknin og hugvitið er nýtt til að auka gagnsæi, bæta aðgengi, einfalda þjónustu út frá þörfum notenda fremur en kerfisins, og minnka um leið vesen, sóun og mengun. 

Aukið aðgengi að upplýsingum

Gagnastjóri borgarinnar er kominn rakleitt úr stefnu Pírata til að halda utan um gagna- og gagnsæismál, þar sem opinn hugbúnaður er fyrsti valkostur með nýju vöruhúsi gagna og fjárfestingu í mikilvægum gagnainnviðum. Búið er að fjármagna og verið er að þróa Gagnsjá Reykjavíkur, nýja styrkjagátt til að auka gagnsæi styrkveitinga, sameinaða lýðræðisgátt, uppfært mælaborð og enn opnara bókhald. Fyrir tilstilli okkar Pírata er nú hægt að nálgast yfirlit launa kjörinna fulltrúa á vefnum. Aukið aðgengi að upplýsingum á öðrum tungumálum en íslensku og auðlesnum texta hefur verið leiðarljós við þróun nýrrar vefsíðu og stafrænnar upplýsingaveitingar.

Fjármögnuð lýðræðisstefna undir forystu Pírata

Mun fleiri hendur móta nú síbreytilega innviði borgarinnar með styrkari stoðum lýðræðis og valddreifingar, með stórauknu samráði og fjölbreyttum leiðum við þróun stefnu og framkvæmd verkefna. Umfangsmikil og fjármögnuð lýðræðisstefna sem mörkuð var undir forystu Pírata hefur verið samþykkt í fyrsta sinn. Með öflugri samráðsnefndum hafa raddir minnihlutahópa fengið enn betri hljómgrunn. Ný íbúaráð með sína slembivöldu fulltrúa, opnu fundi, betri tengsl út í hverfin og inn í kerfið hafa verið innleidd að fullu. Hverfið mitt hefur gengið í endurnýjun lífdaga með meira samráði, bættum ferlum og stærri og fjölbreyttari verkefnum sem leitt hefur til tímamótaþátttöku. Forsætisnefnd var stækkuð fyrir tilstilli Pírata þar sem minnihlutafulltrúar fengu í fyrsta sinn atkvæðisrétt.

Raunhæfir möguleikar

Við eigum raunhæfa möguleika á því að vaxa enn frekar í komandi kosningum. Með öflugri liðsstyrk Pírata í borgarstjórn munum við hafa enn víðtækari áhrif.

Ryðjum mikilvægum verkefnum í þágu gagnsæis, lýðræðis og upplýstrar ákvarðanatöku í gegnum sífreri vanafestunnar með hlýjum faðmi réttlætiselskandi arma. Með því leggjum við grunn að faglegri vinnubrögðum og auknu trausti á stjórnkerfinu og eflum samfélag lýðræðis og almannahags.

Tökum skaðaminnkandi aðgerðir alla leið. Vettlingatök grafa undan raunverulegum árangri og hér er um líf og dauða að ræða. Þá virka ekki málamiðlanir. Með sólarhringsþjónustu í Housing First úrræðunum til að styðja enn betur við heimilisfólkið og takmarka skaða fyrir einstaklinginn og nærumhverfið. Þörf er á að innleiða skaðaminnkandi hugmyndafræði í störfum Félagsbústaða, sem heldur utan um félagslegt húsnæði borgarinnar þar sem fjölbreyttur hópur hlýtur virkan stuðning og þjónustu. Bætt umgjörð um dagleg tækifæri til ýmiskonar virkni getur stuðlað að aukinni vellíðan innan heimila og úrræða sem starfa út frá skaðaminnkandi nálgun.

Hugum að litasamsetningu mósaíkflísa smáatriðanna, sem samankomnar mynda eina stóra heild, í grænni, frjórri og blómlegri lífsgæðaborg. Hugum að gæðum byggðar, gæðum Borgarlínu, gæðum borgarrýmis. Það er ekki sama hvernig við þéttum byggð, það er ekki sama hvernig við byggjum Borgarlínu og það er ekki sama hvernig við flettum upp þessari malbiksmartröð. Það er þetta með smáatriðin, mósaíkflísarnar. Leggjum áherslu á að gerðar séu alvöru kröfur og að langhlaupið sé hlaupið alla leið, án þess að stoppa og án þess að stytta sér leið.

Verum réttum megin við pólitíkina

Við verðum alltaf að standa með forgangi Borgarlínu, gangandi og hjólandi umferðar. Enga hlykkjótta hjólastíga. Sáldrum yfir borgina yfirbyggðum hjólaskýlum við þjónustustofnanir, heimili og verslanir og tryggjum að hjólageymslur séu aðgengilegar á jarðhæð frekar en niðurgrafnar í bakherbergi út frá sorpgeymslunni. Hreinsum enn betur göngu- og hjólastíga á snjóþungum dögum, það á aldrei að mæta afgangi. Tökum ekki í mál að aðgengi gangandi og hjólandi víki við framkvæmdir á meðan forgangur einkabílsins er alltaf tryggður. Verum réttum megin við pólitíkina um plássið. Fækkum bílastæðum og fjölgum hjólastígum. Breikkum gangstíga og endurhönnum götur innan borgarlandsins til þess að lækka hraða og tryggja öryggi. Leggjum grunn að bíllausri byggð þar sem bíllinn mætir afgangi og lífsgæði gangandi og hjólandi eru í forgrunni.

Slík framtið er björt, græn og gæti barasta virkað.

Höfundur er oddviti Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur.

Upprunaleg birtingvisir.is

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Rasismi á Íslandi

Rasismi er vandamál á Íslandi eins og annars staðar í veröldinni. Íslenska lögreglan er þar ekki undanskilin....

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...