Tíðindi dagsins kalla á kjarkaða ríkisstjórn

„Loftlagsbreytingarnar eru hér, í dag. Við erum líka hér, í dag. Ef við bregðumst ekki við, hver á þá að gera það?“ Svona orðaði einn höfunda skýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna það þegar hún var kynnt í dag. Skýrslan er afdráttarlaus varðandi vísindin: Loftslagsbreytingar eru staðreynd, þær eru þegar farnar að hafa áhrif um allan heim og það þarf að grípa til aðgerða tafarlaust.

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, notaði líkingu sem Íslendingar þekkja úr veðurfréttum til að lýsa stöðunni. Skýrslan væri í raun „rauð viðvörun fyrir mannkynið.“ Ein af niðurstöðum hennar er að fátt virðist geta komið í veg fyrir að hitastig jarðar hækki að jafnaði um 1,5 gráður innan tveggja áratuga. Það er miklu fyrr en fyrri skýrslur hafa gefið til kynna og ætti það að vera okkur vakning. Ekkert ríki er of smátt til að hafa áhrif á þessum tímapunkti, því það munar um hvert einasta tonn af gróðurhúsalofttegundum, enda hefur hvert einasta brot úr gráðu sem jörðin hlýnar áhrif á líf tugmilljóna manna.

Guterres var ekkert feiminn við að benda á stærstu orsökina fyrir þeirri stöðu sem við erum í – óhóflega notkun og síaukið framboð jarðefnaeldsneytis – og sagði að skýrslan ætti að vera rothögg fyrir kola-, gas- og olíuiðnaðinn. Á sama tíma og ríki víða um heim stefna á fullri ferð á aukna vinnslu jarðefnaeldsneytis er Guterres skýr: „Ríkjum ber að hætta allri nýrri olíuleit og vinnslu.“ Þetta ætti auðvitað öllum að vera ljóst, en er samt eitthvað sem íslenskir stjórnarþingmenn treystu sér ekki til að segja í júní!

Loftslag framtíðarinnar ræðst af aðgerðum nútíðarinnar og því þarf að gera allt – að beita öllum verkfærum sem við eigum, öllum á sama tíma – til að tryggja lífvænlega framtíð. Skýrsluhöfundar leggja enn og aftur ríka áherslu á að aðgerðir af okkar hálfu hafi aldrei verið jafn aðkallandi. Loftlagsbreytingarnar eiga sér stað á ógnvænlegum hraða um allan heim, eins og þau sem hafa fylgst með fréttum af skógareldum og hitametum á undanförnum vikum hafa ekki farið varhluta af.

Við getum

Þó svo að útlitið sé dökkt vekur skýrslan þó ákveðna von. Vísindin gefa til kynna að mannkynið geti þrátt fyrir allt unnið sig út úr þessum ógöngum. Til þess þurfi hins vegar stjórnmálafólk sem ekki aðeins áttar sig á því að við erum í ógöngum heldur er tilbúið að gera eitthvað í því.

Píratar eru afdráttarlausir í þessum efnum. Loftslagsváin er ein stærsta áskorun mannkyns og kallar á miklar kerfisbreytingar. Ísland hefur alla burði til þess að vera í forystusveit ríkja sem berjast af alvöru gegn þessum breytingum með réttlátum og framsæknum aðgerðum. Kosningastefna Pírata í loftslagsmálum, sem unnin er í nánu samstarfi við fagfólk á þessu sviði, rímar við ákallið sem birtist í skýrslu dagsins – enda átta Píratar sig á stöðunni og eru tilbúin að gera eitthvað í henni.

Græn umbreyting samfélagsins er almenningi til góðs og mikilvægt hagsmunamál komandi kynslóða. Meginábyrgð þess að draga úr mengun og losun gróðurhúsalofttegunda liggur hjá stjórnvöldum og fyrirtækjum. Við ætlum að skattleggja mengun fyrirtækja en valdefla einstaklinga, til dæmis með skýrari og betri upplýsingum sem auðvelda þeim að velja umhverfisvæna kosti. Umhverfisvæni valkosturinn á að vera aðgengilegur öllum óháð efnahag. Við þurfum í sameiningu að búa okkur undir þær áskoranir sem fylgja loftslagsbreytingum, auka tækifæri með menntun og þjálfun starfsfólks í nýjum greinum og tryggja réttlát umskipti fyrir öll. Baráttan gegn loftslagsbreytingum er á sama tíma baráttan fyrir sanngjarnari heimi – stærstu áskoranir heims fléttast saman í því að leysa loftslagsvandann, uppræta fátækt og tryggja efnahagslegt frelsi fólks.

Við ætlum 

Við ætlum að setja markmið um að 55% samdrátt í heildarlosun fyrir árið 2030 miðað við 2020. Við ætlum gera það með sjálfstæðum markmiðum Íslands, frekar en að leggja minna af mörkum í skjóli sameiginlegra evrópskra markmiða eins og fráfarandi ríkisstjórn. Við ætlum að ná fram kolefnishlutleysi ekki síðar en árið 2035 og við ætlum að uppfæra allar áætlanir í loftslagsmálum í samræmi við nýjustu þekkingu. Við ætlum að banna olíuleit og vinnslu olíu í íslenskri lögsögu. Við ætlum að efla innviði fyrir orkuskipti í samgöngum, rafknúin og vistvænni farartæki af fjölbreyttu tagi og sköpum hvata til að auðvelda fólki að nýta sér þau.

Þá ætlum við að setja skýra stefnu um hringrásarhagkerfi. Við ætlum að stórefla hvata fyrir græna nýsköpun, um allt land, og styðja sérstaklega við verkefni sem stuðla að auknum samdrætti í losun eða aukinni kolefnisbindingu. Við ætlum að efla skógrækt og landgræðslu. Við ætlum að hverfa frá ósjálfbærri stóriðjustefnu og forgangsraða smærri notendum.

Við ætlum að gera allt þetta – og miklu meira til. Staðan sem upp er komin kallar á breytingar og við ætlum að breyta rétt. Skýrsla dagsins krefst þess. Heimurinn er á vendipunkti í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og íslenskir kjósendur geti sýnt það í september að þeir vilji ríkisstjórn sem taki stöðunni alvarlega. Ríkisstjórn sem er tilbúin í þær róttæku breytingar sem allt of lengi hefur verið beðið eftir.

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...