Þrettán orð sem breyttu öllu

„Andstæðan við fíkn er ekki að vera allsgáður. Andstæðan við fíkn eru tengsl.“

Þessi þrettán orð Johann Hari breyttu því hvernig ég hugsaði um vímuefnavanda fólks. Hver rannsóknin á fætur annarri hefur enda sýnt að við manneskjurnar höfum meðfædda þörf fyrir tengsl. Þegar okkur líður vel, þegar við erum heilbrigð og hamingjusöm, þá tengjumst við öðrum. Ef við erum einangruð og líður illa þá tengjumst við einhverju sem veitir tímabundinn létti – eins og vímuefnum.

Núverandi refsistefna í vímuefnamálum ýtir undir það síðarnefnda. Hún eykur jaðarsetningu vímuefnanotenda, gerir þeim erfiðara fyrir að tengjast samfélaginu, sem síðan ýtir undir aukinn fíknivanda þeirra.

Ég ræddi við Johann Hari á aðalfundi Pírata í ágúst. Spjallið okkar má sjá hér að neðan.

Gagnslaust og skaðlegt

Það er útilokað að eyða vímuefnum úr samfélaginu. Við gætum varið öllum heimsins peningum og öllum starfskröftum lögreglu í að hafa uppi á efnunum en við myndum samt ekki útrýma þeim. Það sést einfaldlega best í fangelsum landsins. Meira að segja fangar undir strangri öryggisgæslu allan sólarhringinn geta nálgast skammtinn sinn. Við munum aldrei geta upprætt vímuefnin og þau verða hér svo lengi sem það er eftirspurn eftir þeim.

Rannsóknir sýna að harðari refsingar í vímuefnamálum draga hins vegar ekki úr eftirspurn. Þrátt fyrir að Filippseyingar gangi meira að segja svo langt að drepa fíkniefnasala og viðskiptavini þeirra þá hefur staðan lítið breyst á eyjunum. Þó svo að við göngum blessunarlega ekki jafn langt í okkar refsistefnu þá er engu að síður ábyrgðalaust að halda áfram stefnu sem er ekki bara gagnslaus, heldur stórkostlega skaðleg. Hún ýtir notendum út á jaðarinn og viðheldur neyð þeirra.

Nálgun sem virkar

Það er þess vegna sem Píratar vilja hætta að refsa vímuefnanotendum með því að afglæpavæða neysluskammta vímuefna. Fólk með vímuefnavanda á heima í heilbrigðiskerfinu, ekki dómskerfinu. Píratar hafa alltaf beitt sér fyrir skaðaminnkun, einfaldlega af því að hún virkar. Í stað þess að jaðarsetja fólk sér skaðaminnkun til þess að komið er fram við fólk eins og manneskjur. Skaðaminnkunarnálgun hvetur til virkari þátttöku í samfélaginu og eykur þannig líkur á bata. Við drögum úr andstöðu samfélagsins við vímuefnanotendur, án þess að eyða andstöðunni við vímuefnin sjálf.

Píratar vilja draga úr eftirspurn eftir vímuefnum með aðferðum sem virka: Með gagnreyndum forvörnum, fræðslu, viðhalds- og meðferðarúrræðum. Þar þarf sérstaklega að huga að áhrifaþáttum fíknar, svo sem áfalla í æsku og annarra félagslegra þátta. Við viljum setja nýja og mannúðlega stefnu í áfengis- og vímuvörnum samhliða afglæpavæðingu neysluskammta, þar sem áhersla verður lögð á skaðaminnkun, fræðslu og forvarnir. Engin slík stefna er í gildi hjá stjórnvöldum sem stendur.

Velsæld og vímuefni

Besta forvörnin í vímuefnamálum er þó að uppræta fátækt og neyð. Útrýma því sem einangrar fólk, lætur því líða illa og leiðir til þess að það leitar í tímabundinn létti vímuefnanna. Þess vegna tölum við Píratar fyrir velsældarhagkerfinu sem hvílir á þeirri hugmynd að hætta að einblína á hagvöxt sem eina mælitækið á gæði samfélagsins. Við þurfum fleiri og betri mælikvarða.

Eins og hvort auðvelt sé að eignast húsnæði? Hvernig er geðheilbrigði þjóðarinnar? Er umhverfið heilsusamlegt? Er menntakerfið gott? Er mikil lýðræðisleg þátttaka? Gott heilbrigðiskerfi?

Mælikvarðar sem þessir breyta ekki aðeins hvötunum í hagkerfinu og auka gagnsæið, því þá veit fólk hvort skattpeningar þeirra séu raunverulega að bæta samfélagið, heldur stuðla jafnframt að alvöru lausnum gegn vímuefnavandanum. Við sköpum efnahagslegt svigrúm fyrir fólk til að huga að tilgangi og ástríðu, í stað þess að þræla sér út til þess eins að ná ekki einu sinni endum saman. Þannig fyrst getum við ræktað þá þætti samfélagsins sem ýta undir heilbrigða tengslamyndun sem dregur úr vímuefnavandanum, því jú: Andstæðan við fíkn er ekki að vera allsgáður. Andstæðan við fíkn eru tengsl.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...