Þetta vilja Píratar gera fyrir yngstu íbúa Kópavogs

Barn sem fæðist í dag á rétt á 12 mánaða fæðingarorlofi með forsjáraðilum sínum (gefum okkur að þetta ímyndaða barn eigi tvo foreldra sem báðir hafa verið í lágmarksstarfshlutfalli á vinnumarkaði, eða í námi, í tilgreindan tíma fyrir fæðingu þess). Hvað gerist að þessum 12 mánuðum loknum? Jú, ef barnið er fætt á vormánuðum getur það átt von á að fá inngöngu í leikskóla við 15 mánaða aldur. Ef það býr í heppilegu hverfi gæti sá leikskóli verið í göngufjarlægð frá heimili þess, annars gæti hann verið hvar sem er í bænum. Ef barnið er fætt um sumar þarf það að bíða í ár í viðbót eftir að fá inngöngu í leikskóla, þar sem að jafnaði losnar aðeins um pláss á haustin þegar elstu börnin fara í grunnskóla.

Leikskólapláss í nærumhverfi og heimgreiðslur fram að því

Staðan er því sú að í mörgum tilfellum er annað foreldrið áfram heima með barnið í allt að ár þar til það fær inngöngu í leiksklóla. Þessu fylgir auðvitað mikil tekjuskerðing fyrir heimilið, sumir bregða á það ráð að skrá sig í háskólanám aðeins til þess að geta fengið framfærslulán frá Menntasjóði.

Við Píratar viljum stefna að því að öllum börnum í Kópavogi bjóðist leikskólapláss í nærumhverfi sínu frá 12 mánaða aldri, óski forsjáraðilar þess, og við viljum strax bjóða forsjáraðilum heimgreiðslur á meðan beðið er. Upphæð heimgreiðslna ætti að taka mið af kostnaði sveitarfélagsins við að niðurgreiða leikskólapláss, sem nemur hátt í 200.000 krónum á mánuði. Ef kostnaður sveitarfélagsins er lægri fyrir þau börn sem ekki hafa fengið inngöngu í leikskóla er raunverulega innbygður hvati til óbreytts ástands.

Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli

Við viljum líka skapa hvata til styttri dagvistunar með 6 tíma gjaldfrjálsum leikskóla og höfum þegar lagt fram tillögu þess efnis í bæjarstjórn Kópavogs. Þetta er hægt að gera með litlum sem engum tilkostnaði fyrir bæjarsjóð, en í núverandi fyrirkomulagi greiðir Kópavogsbær um 75% kostnaðar við leikskóladvöl barna. Langflest börn dvelja á leikskólum í átta tíma á dag og því eru sex tímar einmitt 75% af vistunartíma flestra barna. Haldist dvalartími barna sá sami eftir breytinguna eykst kostnaður sveitarfélagsins því ekki að neinu ráði.

En fleira hangir á spýtunni en aðstæður foreldra og barna þeirra. Nái breytingin fram að ganga mun álag á leikskólakennara og leiðbeinendur minnka og veita aukið svigrúm til að vinna að undirbúningi námsins. Þá mætti færa deildarfundi yfir á dagvinnutíma og þannig spara kostnað við yfirvinnu. Auk þess spilar aðgerðin vel með markmiðum um styttingu vinnuvikunnar.

Þar sem sambærilegar tillögur hafa verið rýndar hefur niðurstaðan verið sú að tekjutap bæjarins vegna styttri dvalartíma yrði í öllum tilfellum minna en sparnaður vegna minni þrýstings á kerfið.

Stundum er sem betur fer hægt að gera líf almennings betra með litlum tilkostnaði, einföldum aðgerðum og bara smá vilja til að líta hlutina frá nýju sjónarhorni.

Upprunaleg birtingvisir.is

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...