Svifryk og svartolía – dauðans alvara

Svartolíumengun og afleiðingar hennar eru dauðans alvara fyrir einstaklinga og vistkerfið í heild. Fyrir þessu eru vísindalegar sannanir. Heilsa landsmanna og lífríki landsins eiga ekki bara að njóta vafans – því það það er enginn vafi. Þau þarfnast verndar.

Umhverfisstofnun ESB segir í nýlegri skýrslu að árið 2015 hafi allt að „hundrað manns hafi dáið ótímabært af völdum loftmengunar á Íslandi. Hluti þessarar loftmengunar kemur frá skemmtiferðaskipum sem liggja við höfn. Loftmengunin hefur einnig neikvæð áhrif á heilsu fólks þótt hún leiði ekki til dauða.”

Þor til að taka ákvarðanir

Nýlegar mælingar á vegum Náttúruverndarsamtaka Íslands sýna einnig að svifryk í Reykjavík er langt yfir öllum mörkum og óboðlegt heilsu borgarbúa.

Mengandi svifryk á sér fyrst og fremst rætur í samgöngum okkar og gestanna okkar, og í hvert sinn sem við ferðumst eða kaupum bætum við í útblástursskýið. Gróðurhúsalofttegundir ógna velferð mannkyns og við þurfum að bregðast við hratt og allstaðar þar sem hægt er. Svarið er ekki aðgerðaleysi, heldur að velja umhverfisvænni valkosti. Tækninýjungar koma fram nær daglega og það getur verið erfitt að þora að taka stórar ákvarðanir, en það þarf að gera hér.

Viðsnúningur er möguleiki

Um Faxaflóahafnir fara flest skip landsins og sífellt fleiri skemmtiferðaskip eiga þar viðlegu. Brennisteinsútblástur frá þessum skipum og annarri skipaumferð, er vaxandi vandamál sem Faxaflóahafnir hafa viljað taka á lengi. Félagið lét vinna úttekt á möguleikum í rafmagnstengingum skipa og hefur hafnarstjóri, Gísli Gíslason, verið leiðandi í umræðunni um að Íslendingar staðfesti viðauka VI við MARPOL-samninginn sem fjallar um um takmörkun á útblæstri brennisteinsefna, köfnunarefnissambanda og rykagna.

Með þessu væri stigið fyrsta skrefið að stofnun svokallaðs ECA-svæðis í landhelginni en það myndi þýða að öll skip sem sigla innan efnahagslögsögu Íslands verði að uppfylla ECA-reglur um efnainnhald eldsneytis. Reynslan af stofnun ECA-svæða í Eystrasalti og Norðursjó hefur sýnt að þessar aðgerðir bera árangur og það hratt eins og undraverður viðsnúningur á dýralífi þar hefur sýnt.

Vernda þarf alla landhelgina

Nú í mai samþykkti stjórn Faxaflóa áskorun um bann á notkun svartolíu við Ísland og fór fram á hið sama af eigendum sínum, sveitarfélögunum við Faxaflóa. Undirritaðar Pírötur taka undir með Faxaflóahöfnum og skorum á stjórnvöld að samþykkja og færa í lög sem fyrst viðauka VI á MARPOL-samningnum. Í kvöldfréttum í gær sagði Björt Ólafsdóttir, umhverfisráðherra að skynsamlegt væri að „finna sérstaklega viðkvæm svæði hér við Íslandsstrendur sem þurfa þessa alþjóðlegu flokkun.“ Að okkar mati er það alls ekki nógu langt gengið. Landhelgin öll ætti að vera markmiðið.

Það dugar skammt að handvelja einstaka viðkvæm þegar enginn vafi ríkir lengur um skaðsemi svartolíubrunans og gögn sýna svart á hvítu að mengunin kostar Íslensk mannslíf. Hér er þörf á aðgerðum, ekki frekara samráði við sterka hagsmunaaðila. Líf og heilsa landsmanna eiga alltaf að njóta vafans.

Höfundar eru fulltrúi Pírata í stjórn Faxaflóahafna og áheyrnarfulltrúi Pírata í Skipulagsráði Reykjavíkur.

Greinin birtist á Vísi þann 1. september 2017

Kommentakerfi Pírata

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...