Svar við bréfi Boga

Mér hafa borist tvö bréf á síðustu dögum frá Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group. Tilefni bréfaskriftanna eru eftirfarandi ummæli mín í Kryddsíld Stöðvar 2 á gamlársdag, sem féllu eftir að fjármálaráðherra hafði sagt fjölda flokka á Alþingi til marks um „sundrungu stjórnmálanna“:

Ég verð að segja að orð Bjarna [Benediktssonar] minna mig svolítið á orð þess sem var valinn maður ársins af Markaðnum í Fréttablaðinu: Honum líkar ekki við samkeppni og átta flokkar á Íslandi eru einfaldlega samkeppni um atkvæði kjósenda. Það felst fjölbreytileiki í því og það er mikilvægt að hann fái að koma fram. Það hefur of lengi verið allt of einsleitur hópur sem stjórnar þessu landi sem telur sig yfir lög og reglur hafinn. Það er kominn tími til að breyta til, það er algjörlega á hreinu.

Ég verð að segja að orð Bjarna [Benediktssonar] minna mig svolítið á orð þess sem var valinn maður ársins af Markaðnum í Fréttablaðinu: Honum líkar ekki við samkeppni og átta flokkar á Íslandi eru einfaldlega samkeppni um atkvæði kjósenda. Það felst fjölbreytileiki í því og það er mikilvægt að hann fái að koma fram. Það hefur of lengi verið allt of einsleitur hópur sem stjórnar þessu landi sem telur sig yfir lög og reglur hafinn. Það er kominn tími til að breyta til, það er algjörlega á hreinu.

Bogi, sá sem hlaut nafnbótina viðskiptamaður ársins 2020 í Markaðnum, kunni því illa að ég skyldi setja þá Bjarna Benediktsson undir sama hatt með þessum hætti. Svo illa, að hann sendi mér tölvupóst einungis nokkrum mínútum eftir að ég lét þessi orð falla, löngu áður en þættinum lauk. Í póstinum sagði hann að þrátt fyrir að hann teldi „óraunhæft að reka tvö félög frá Íslandi“ líkaði honum og Icelandair þvert á móti vel við samkeppni, og bað mig um að leiðrétta þessi ummæli mín á opinberum vettvangi. Fjórum dögum síðar sendi hann mér annan póst þar sem hann ítrekaði þessa beiðni sína.

Í fyrstu hafði ég ekki hugsað mér að bregðast sérstaklega við bréfi Boga. Ummæli mín um að svar Bjarna „minnti mig svolítið á orð“ viðskiptamanns ársins þóttu mér einfaldlega ekki gefa tilefni til þess. Nafnbót Boga hafði sætt beinskeyttri gagnrýni og háðsglósum í aðdraganda Kryddsíldar og hefur forstjórinn því þurft að senda ófáa pósta um áramótin ef hugrenningatengslin mín kölluðu á bréfaskriftir.

Eitthvað Bogið við bréfið

Því spurði ég mig: Hvers vegna ætli þetta hafi farið svona fyrir brjóstið á honum? Viðskiptamaður ársins, sem varði umræddu ári í stríð við eigin starfsmenn milli þess sem hann þáði milljarða úr sjóðum almennings til að halda sér á floti, hlýtur að hafa öðrum og mikilvægari hnöppum að hneppa en að eltast við einhvern svona tittlingaskít.

Ætli það sé vegna þess að við Píratar vorum eini flokkurinn á þingi sem lagðist gegn því að veita Icelandair ríkisaðstoð í haust? Ríkisaðstoð sem hvílir á áætlunum Icelandair um að nýtt íslenskt flugfélag muni ekki líta dagsins ljós næstu árin? Það að teikna upp slíkar áætlanir og gefa stjórnvöldum um leið hvata til að þær rætist er ekki beint til marks um dálæti á samkeppni.

Ætli það sé kannski vegna þess að Píratar tóku einarða afstöðu með flugfreyjum í kjarabaráttu þeirra við Icelandair? Sem máttu þola það að viðskiptamaður ársins þverbryti allar reglur í vinnudeilum, færi framhjá samninganefnd flugfreyja og segði þeim síðan upp í miðri kjarabaráttu – allt í nafni samkeppnishæfni? Ást manns á samkeppni þarf að vera býsna heit til þess að maður sé tilbúinn að grafa undan eigin starfsmönnum fyrir hana, en hvað um það.

Bjarni og Bogi

Eða kannski var það bara samanburðurinn við fjármálaráðherra sem mæltist svona illa fyrir? Sá hafði sjálfur verið í eldlínunni eftir að hafa verið nappaður grímulaus í fjölmennri samkomu í Ásmundarsal. Það kæmi mér þó á óvart, enda virðast þeir Bjarni og Bogi oft ganga í takt.

Þegar Bjarni var t.d. spurður í beinni útsendingu hvers vegna rétt væri að veita Icelandair ríkisábyrgð var það fyrsta hugsun Bjarna að það væri „mat forsvarsmanna félagsins“ að hennar væri þörf. Ekki að það væri hagur almennings, ferðaþjónustunnar eða ríkissjóðs að aðstoða Icelandair umfram önnur fyrirtæki og umfram þá milljarða sem félagið hafði áður fengið í gegnum aðrar aðgerðir, heldur væri það einfaldlega mat Boga og félaga.

Don’t hate the Play air

Rúmri klukkustund eftir að Bjarni lét þessi orð falla í beinni útsendingu gekk hann inn í þingsal og samþykkti ríkisaðstoðina. Fyrir liggur að það var beiðni Boga en ekki aðdáun Bjarna á samkeppni sem stýrði þeirri ákvörðun hans. Samkeppniseftirlitið tók af allan vafa um það. „Fyrirsjáanlegt er að ríkisaðstoðin muni hafa skaðleg áhrif á samkeppni,“ sagði í harðorðri umsögn þess um málið.

Eftirlitinu leist heldur ekkert á þá staðreynd að Icelandair gæti virkjað ríkisaðstoðina ef svo færi að „aukin samkeppni muni leiða til lægri verða á flugsætum en gert er ráð fyrir.“ Í þessu samhengi nefndi Samkeppniseftirlitið sérstaklega að flugfélagið Play væri í startholunum, enda væri það mat eftirlitsins að áform Play um að hefja flugrekstur hér á landi væru „þýðingarmikil í samkeppnislegu tilliti.“

Ekki þyrfti því að „fjölyrða um þá skekktu samkeppnisstöðu“ sem af ríkisaðstoðinni myndi hljótast fyrir keppinauta eins og Play, með tilheyrandi tapi fyrir neytendur. Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins var raunar mjög einföld:

Með hliðsjón af öllu framangreindu er ljóst að hin áformaða ríkisaðstoð mun, að öllu öðru óbreyttu, styrkja stöðu Icelandair í samkeppni við starfandi fyrirtæki, eða fyrirtæki sem hyggja á innkomu á þá markaði sem félagið starfar á.

Að bregðast Bogalistin

Krafa Boga um margra milljarða ríkisaðstoð og barátta Bjarna fyrir samþykkt hennar miðaði því beinlínis að því að skaða samkeppnina sem Bogi og Bjarni segjast vera svo annt um. Eina stundina fagna þeir samkeppni opinberlega – en þá næstu krefjast þeir þess að ríkið leggi stein í götu hennar.

Að þessu sögðu get ég tekið undir með Boga. Ég hefði átt að vera nákvæmari í Kryddsíldinni þegar ég vísaði í orð þessa ríkisstyrktasta viðskiptamanns ársins. Eftir nánari umhugsun og lestur þessara bréfa hef ég nefnilega áttað mig á því að honum er ekki illa við samkeppni, svo lengi sem það er ekki íslensk samkeppni.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Rasismi á Íslandi

Rasismi er vandamál á Íslandi eins og annars staðar í veröldinni. Íslenska lögreglan er þar ekki undanskilin....

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...