Skaðleg minnimáttarkennd

Þegar talað er um loftslagsvána þá virðumst við Íslendingar fljót að verða „litlasta land í heimi.“ Við teljum okkur trú um að þau áhrif sem við höfum á umhverfið séu svo lítil að það skipti eiginlega ekki máli hvað við gerum. Það er hins vegar skaðlegur hugsunarháttur fyrir margra hluta sakir, ekki síst í ljósi þess að við þurfum að taka skýra afstöðu í nóvember. Ekki aðeins er losun gróðurhúsalofttegunda hér ein sú hæsta á hvern íbúa í heimi heldur værum við að lesa algjörlega rangt í þróunina sem er að eiga sér stað, bæði í loftslags- og efnahagsmálum.

Óháð öllum þeim magntölum sem þessi smáa þjóð gefur frá sér þá munum við alltaf finna fyrir áhrifum loftslagsbreytinga, jafnvel fyrr en aðrar þjóðir. Meiri öfgar í veðurfari, hækkandi sjávarstaða, súrnun sjávar, skógareldar, aukin skriðuhætta og sterkari stormar eru allt eitthvað sem við megum eiga von á. Þetta mun gerast ef ekkert verður að gert, hvort sem það verður fyrir okkur sjálf, börn okkar eða barnabörn. Það dugar ekki að stinga hausnum í sandinn og vonast til að allt reddist.

Forystuþjóð

Smáar þjóðir geta haft áhrif langt umfram eigin stærð. Þetta höfum við Íslendingar sýnt á undanförnum árum, t.d. þegar við með kjark og forystu bentum á mannréttindabrot á Filippseyjum og í Sádí-Arabíu í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Í Evrópuráðinu, undir forystu Pírata, höfum við síðan leitt baráttuna gegn mannréttindabrotum í Rússlandi, Aserbaísjan og á Krímskaga.

Um áratugaskeið höfum við Íslendingar miðlað af þekkingu okkar á sviði sjávarútvegs, jarðhita, landgræðslu og jafnréttis, fyrst undir merkjum Háskóla Sameinuðu þjóðanna og núna undir merkjum Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO. Auk þess hafa íslensk fyrirtæki og sérfræðingar starfað víða um heim í að aðstoða lönd við að virkja jarðvarma og aðra græna orkugjafa.

Grænt fjármagn

Þjóðir heims eru að vakna upp við þann vonda draum að aðgerðir síðasta áratugs gegn loftslagsbreytingum eru ekki að virka sem skyldi. Heimurinn er einnig að átta sig á því að þessar aðgerðir munu ekki virka nema með breiðri samvinnu hina ýmsu sviða samfélagsins. Leggja þarf háar upphæðir í rannsóknir og þróun á tækni sem leysir af hólmi mengandi iðnað.

Þá eru jafnvel stórfyrirtæki, langstærstu sökudólgarnir í loftslagsmálum, farin að taka sönsum. Auðmenn eins og Bill Gates og Jeff Bezos eru persónulega að leggja tugi milljarða dollara í rannsóknir og þróun á lausnum sem geta spornað við loftslagsbreytingum. Stórfyrirtæki víða um heim eru einnig að leggja hundruð milljarða dollara í grænar lausnir á eigin sviði. Að sama skapi hafa risavaxnir fjárfestingarsjóðir áttað sig á því að þarna liggja framtíðartækifærin. Þessa fjármuni getum við sótt, ef við tökum forystu.

Tækifærin eru okkar

Við höfum kjörið tækifæri til þess að verða forystuþjóð þegar kemur að baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Píratar vilja nýta sögu þjóðarinnar, þekkingu og reynsla á þessu sviði til að leggja grunn að alþjóðlegu þekkingar- og nýsköpunarsetri á sviði loftslagsmála. Þar yrði aukin samvinna við háskóla innan lands og utan með áherslu á kennslu, rannsóknir og nýsköpun. Samhliða þeirri starfsemi ætti að setja upp alþjóðlega nýsköpunarhraðla og fjárfestingarsjóð í samvinnu við íslenskt og alþjóðlegt atvinnulíf. Ef við erum tilbúin að hugsa út fyrir boxið, hugsa stórt, þá getur Ísland laðað að sér gríðarlegt fjármagn, fólk og fyrirtæki sem eru tilbúin að vinna saman gegn þessari stærstu vá sem mannkynið hefur nokkru sinni staðið frammi fyrir.

Við höfum tengslanetið til að fá réttu aðilana að borðinu. Við höfum öflugt vísinda- og þekkingarsamfélag sem við getum byggt á. Við höfum áratuga reynslu í að nýta græna orku og það mikilvægasta er að við höfum sterka ímynd sem náttúruperla og uppspretta hreinnar orku. Það orðspor þurfum við að styrkja og sýna að við séum traustsins verð. Það getum við gert með því að grípa til miklu róttækari aðgerða í loftslagsmálum en áður og að næsta ríkisstjórn kynni þær aðgerðir strax á loftslagsfundi Sameinuðu þjóðanna, sem haldinn verður í Glasgow núna í nóvember.

Skynsamleg framtíð

Ef við sýnum þor og kjark til að hugsa stórt þá getur Ísland verið í fararbroddi í baráttunni við loftslagsvá. Framtíðin er græn og þar liggja fjármunirnir. Tækifærin í loftslagsvænum lausnum eru óteljandi og munu varða leiðina í atvinnu- og verðmætasköpun næstu áratugina. Græn framleiðsla á aðeins eftir að verða verðmætari og við eigum að byggja á því forskoti sem endurnýjanlegu orkugjafar þjóðarinnar hafa veitt okkur. Tækifærið er núna.

Þá stöndum við ekki einungis undir því að vera hreinasta og grænasta land í heimi, heldur líka að við erum „stórasta land í heimi“ þegar kemur að baráttunni við loftslagsbreytingar. Það er engan veginn óraunhæft, það er skynsamlegt.

Upprunaleg birtingVísir

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...