Sjaldan býr einn þá tveir deila

Hópbúseta, þegar margir aðilar sem eru ekki endilega tengdir fjölskylduböndum deila heimili að einhverju eða öllu leyti, hefur marga kosti fram yfir hefðbundna einangraða búsetu. Hún auðveldar fólki að deila kostnaði og eykur möguleika á samvinnu og félagslegum tengslum. Það getur verið hagkvæmt að deila rýmum og heimilistækjum auk þess sem það sparar pláss og minnkar sóun. Við þekkjum útfærslur á þessu nú þegar í takmarkaðri mynd, en í mörgum fjölbýlishúsum eru sameiginleg þvottahús og hjólageymslur. Fyrir utan það er búseta þar sem fólk deilir rýmum með öðrum vanalega hugsuð sem óákjósanlegt örþrifaráð fyrir lágtekjuhópa og nemendur, og er húsnæði því ekki hannað með slíkt í huga.

Að deila rými með öðrum er ekki vandamálið

Á langri þrautagöngu minni á leigumarkaði öðlaðist ég mikla reynslu af því að búa með öðru fólki, oft í þröngum og erfiðum aðstæðum. Erfiðleikarnir stöfuðu þó ekki af því að það væri á einhvern hátt slæmt að búa með öðrum. Vandamálin voru afurð þess að ekki er gert ráð fyrir hópbúsetu í samfélaginu.

Ein algeng útfærsla hópbúsetu er herbergjaleiga þar sem svefnherbergi eru leigð stök til eins eða fleiri einstaklinga. Reynsla mín af því fyrirkomulagi er sú að oftast er baðherbergisaðstaða, sorptunnufjöldi, eldhússtærð og ískápapláss allt miðað út frá þörfum meðalstórrar barnafjölskyldu og dugir því ekki þeim fjölda fullorðinna einstaklinga sem deila heimilinu.

Önnur útfærsla hópbúsetu sem ég hef kynnst er þegar hópur fólks leigir saman heila íbúð. Þar geta auðveldlega komið upp vandamál tengd því að einungis ein manneskja er ábyrg fyrir leigusamningnum, sem skapar mikið ójafnvægi í samvistinni ef aðilar eru ekki jafn samstíga og hjón með tvö komma eitt barn og hund. Svona þarf þetta ekki að vera.

Hvar er fjölbreytnin?

Eins og áður var nefnt þá þekkjum við sameiginleg þvottahús og hjólageymslur. Þegar ég bjó á Ásbrú kynntist ég annars konar sameiginlegu innirými í fjölbýli. Á jarðhæð blokkanna þar er salur sem tilheyrir öllum íbúum hússins. Þar geta börn leikið sér, afmælis- og fermingarveislur verið haldnar eða fólk hreinlega hangsað saman. Þetta opnaði huga minn fyrir því hvaða aðrir möguleikar gætu verið fýsilegir.

Hvers vegna eru ekki fleiri leiðir til að búa en að leigja eða kaupa heila íbúð sem verður að innihalda allt? Af hverju eru ekki fleiri valkostir? Af hverju eru ekki til íbúðir hannaðar fyrir marga fullorðna til að deila heimilishaldi? Fjölbýlishús með litlum íbúðum en helling af sameiginlegu rými til tómstundaiðkunar og félagslífs, fyrir börn og fullorðin? Eða sameiginleg skrifstofu- og samvinnurými í fjölbýli? Hvað með fjölbýlishús þar sem er rekið mötuneyti, fyrir fólk sem vildi verja tíma sínum og kröftum öðruvísi en að sjá um matarinnkaup og matreiðslu? Hvað með vinnu-/verkstæðisaðstöðu fyrir lista- og handverksfólk í fjölbýli? Það ætti ekki að þurfa að vera lúxus einungis fyrir þau sem hafa kost á því að kaupa eign sem fylgir einkabílskúr.

Þarf ekki að vera bara tímabundið úrræði

Hópbúseta eins og hún birtist í samfélaginu í dag er hugsuð sem tímabundið úrræði til þess að fólk geti búið einhversstaðar á meðan það klárar nám eða kemst á betri stað fjárhagslega. Fyrirkomulagið er álitið óákjósanlegt og því eigi það að vera markmið allra í hópbúsetu að flytja í einangraða íbúð, rétt eins og það á að vera markmið allra á leigumarkaði að kaupa.

Þetta þarf ekki að vera raunin, ef regluverk og húsnæði væri hannað með mismunandi búsetuform í huga þá væru þau ákjósanlegir valkostir. Ánægjulegt hefur verið að sjá nýlega uppbyggingu óhagnaðardrifinna leigufélaga, sem Reykjavíkurborg hefur lagt áherslu á samstarf við á kjörtímabilinu. Sú uppbygging er merki um að hér séu að verða til fleiri búsetuvalkostir, í formi öruggrar langtímaleigu, en það er ekki nóg.

Það er stefna Pírata í Reykjavík að stuðla að fjölbreyttri húsnæðisuppbyggingu sem tekur mið af framtíðarmöguleikum og hentar þörfum mismunandi samfélagshópa, meðal annars með því að stuðla að möguleikum til hópbúsetu.

Heimili framtíðarinnar eru allskonar

Ljóst er að ýmsu þarf að breyta í regluverkinu til að frelsi fólk til að búa á óhefðbundinn hátt sé ekki skert. Ég fagnaði því ákaft þegar Björn Leví lagði fram tillögu um endurskoðun hjúskaparlaga. Ég vil kalla eftir endurskoðun á þeim með tilliti til fjölbreytni mannlífsins, ásamt endurskoðun á lögum um húsaleigu til að bæta réttarstöðu fólks á leigumarkaði.

Við ættum að skoða byggingarreglugerðir með tilliti til möguleika á fjölbreyttari búsetuformum, svo húsnæðisuppbygging geti komið til móts við þarfir og langanir allra þeirra sem leita að húsnæði og lífsstíl við sitt hæfi. Lifnaðarhættir fólks hafa breyst og munu þróast áfram. Látum ekki regluverkið sitja eftir. Við eigum ekki öll að þurfa að troða okkur í sama mót ellegar fara torfærar krókaleiðir til að búa eins og við viljum. Fögnum fjölbreytileikanum og veitum fólki tækifæri til að blómstra á þann hátt sem það kýs.

Upprunaleg birtingvisir.is

Kommentakerfi Pírata

Skrifa ummæli við þessa grein

Skrifaðu athugasemdina þína
Vinsamlegast sláðu inn nafnið þitt hér

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

On­lyFans, klám og ó­skyn­sam­legar refsingar

Umræðan um klám er mikilvæg og henni er hvergi nærri lokið. Það eru margir vinklar á henni...

Píratar í 10 ár og meira

Píratahreyfingin er 16 ára gömul á heimsvísu en 10 ára gömul á Íslandi. Árið 2013 tóku Píratar...

Borgarbúar skulu fá fyrsta flokks hjólastíga

Of oft þarf ég að grípa inn í tilvik þar sem mér finnst vanta upp á grænan...

Þegar kerfið segir nei

Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel...

Áratugur í Íslenskum stjórnmálum

Það er sagt að vika sé langur tími í pólitík, svo það hlýtur að teljast ágætt að...

A Decade in Icelandic Politics

There is a saying that a week is a long time in politics, so the fact that...

Manneskjan í jakkafötunum

Áður en ég byrjaði í stjórnmálum sá ég þingmenn alltaf fyrir mér sem fólk í jakkafötum og...

Destroyed by Unjust Law

We tend to think of our own interests rather than others when our safety is threatened, but...

Og ólögum eyða

Þegar öryggi okkar er ógnað hugsum við gjarnan um eigin hag en ekki annarra. Það er eingöngu...

Börn í kerfinu þola enga bið

Samfélagið hefur nú heyrt hræðilegar og átakanlegar sögur af reynslu kvenna sem hlutu úrræði á Laugalandi í...

Suðvesturkjördæmi tapar þingmanni

Okkur mun ekki skorta áskoranir á nýju ári. Farsóttir, náttúruhamfarir og sveitarstjórnarkosningar auk þess sem Alþingi hefur...

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?

Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum...

Lýðræði er miklu meira en bara kosningar

Slagorð Pírata fyrir alþingiskosningarnar er „Lýðræði - ekkert kjaftæði“ og ekki að ástæðulausu.  Píratar voru stofnaðir til þess...

Skattarnir sem þú sérð ekki

Við Píratar erum stundum gagnrýnd fyrir það að tala mikið um aðgerðir gegn spillingu. Það sé óþarfi...

Ert þú með lægri laun en þing­maður?

Píratar telja að skattkerfið eigi að vera tvennt: Stigvaxandi (á ensku: progressive) og grænt. Það þýðir annars vegar að...